Ægir Þór ætlar að nýta hraða sinn gegn Ísrael 21. ágúst 2012 14:00
Ægir Þór Steinarsson leikstjórnandi íslenska landsliðsins í körfuknattleik fær eflaust stórt hlutverk í kvöld þegar Ísland tekur á móti Ísrael í undankeppni Evrópumótsins í Laugardalshöll. Ægir fékk óvænt tækifæri í byrjunarliðinu í 81-75 sigri Íslands gegn Slóvakíu á útivelli s.l. laugardag eftir að Pavel Ermolinskij meiddist í upphitun. Pavel verður ekki með í kvöld og það er ljóst að það mun mikið mæða á Ægi. „Ég fékk að vita það rétt áður en leikurinn hófst að ég myndi byrja inná gegn Slóvakíu. Ég reyni bara að nýta hraðann og minn styrkleika gegn þeirra veikleika. Það hefur alltaf verið þannig. Ég mun nýta hraðann og leika menn uppi," sagði Ægir í gær en Ísland er með einn sigur og eitt tap eftir fyrstu tvo leikina. Ísrael hefur hinsvegar tapað báðum leikjum sínum í keppninni og tveggja stiga sigur Eistlendinga í Ísrael um s.l. helgi kom flestum á óvart. Leikurinn hefst kl. 19.15 og fer hann fram í Laugardalshöll. Staðan í riðlinum eftir tvær umferðir er þessi, gefin eru 2 stig fyrir sigur og 1 fyrir tap: 1. Eistland 4 stig 2. Svartfjallaland 4 stig 3. Serbía 3 stig 4. Ísland 3 stig 5. Ísrael 2 stig 6. Slóvakía 2 stig
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Kýldur kaldur en ætlar ekki að kæra Sport Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Sjá meira