Viðskipti erlent

Samsung gefur ekkert eftir - kynnir nýja vörulínu

Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung kynnti nýjustu vörulínu sína á IFA tækniráðstefnunni í Berlín í gær. Enginn uppgjafartónn er í Samsung, þrátt fyrir slæma niðurstöðu í dómsmáli gegn Apple á dögunum.

Samsung hefur lengi vel verið þekkt fyrir tilraunastarfsemi og að fara ótroðnar slóðir. Þetta sannaðist í gær þegar fyrirtækið opinberaði stafræna myndavél sem knúin er af Android-stýrikerfinu, Windows 8 snjallsíma og spjaldtölvu sem knúin er af sérhannaðri útgáfu Windows 8 stýrikerfisins.

Þá var einnig ný útgáfa af Galaxy Note kynnt til sögunnar — svokallað snjallbretti — sem er stærri en flestir snjallsímar og minni en nær allar spjaldtölvur.

Snjallbretti. Uppfærð útgáfa af Galaxy Note var kynnt í gær.mynd/AFP
Þetta eru fyrstu vörurnar sem Samsung kynnir til leiks eftir að fyrirtækið var sektað um milljarð dollara fyrir að hafa brotið á lögum um hugverkavernd. Upphæðin nemur tæpum 123 milljörðum íslenskra króna. Líklegt þykir að Samsung muni áfrýja dóminum. Þá hefur Apple farið fram á lögbann á nokkrum snjallsímum Samsung í Bandaríkjunum.

Það skiptir því miklu máli fyrir Samsung að halda í viðskiptavini sína — nýjar og framúrstefnulegar vörur skipta sköpum í þeim efnum.

Samsung er nú fyrst farið að finna fyrir raunverulegum áhrifum dómsins. Markaðsvirði fyrirtækisins hrundi þegar markaðir opnuðu á mánudaginn. Þá hefur vefsíðan Gazelle, sem selur notaða farsíma, greint frá því að 50 prósenta aukning hafi orðið í seldum Samsung snjallsímum í þessari viku.

Hægt er að sjá myndband frá kynningu Galaxy Note 2 hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×