Viðskipti erlent

Ben & Jerry´s höfðar mál gegn klámmyndaframleiðendum

Bandaríski ísframleiðandinn Ben & Jerry´s hefur höfðað mál gegn klámmyndaframleiðendum í Bandaríkjunum.

Ísframleiðandinn telur að klámframleiðendurnir hafi farið illa með nöfnin á ýmsum þekktum ístegundum sínum með því að afbaka nöfnin í heitum á nokkrum klámmyndum.

Ístegundirnar sem hér um ræðir eru m.a. Boston Cream Pie, Chocolate Fudge Brownie og Peanut Butter Cup.

Heitin á klámmyndum þeim sem hér um ræðir eru hinsvegar Boston Cream Thighs, Chocolate Fudge Babes og Peanut Butter D-Cups.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×