Viðskipti erlent

Merkel styður áætlun Seðlabanka Evrópu

Magnús Halldórsson skrifar
Angela Merkel.
Angela Merkel.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er ánægð með áætlun Seðlabanka Evrópu (SE) sem snýr að kaupum á ríkisskuldabréfum Evrópuþjóða sem eiga í vandræðum vegna mikilla skulda og hás vaxtaálags. Merkel sagði á blaðamannafundi í dag að hún efaðist ekki um að áætlun bankans væri vel undirbyggð og að lánafyrirgreiðsla bankans, með skuldabréfakaupunum, yrði ekki tapað fé að lokum, eins og margir hafa gagnrýnt bankann fyrir.

Seðlabanki Evrópu sagði í yfirlýsingu á vaxtaákvörðunardegi fyrr í mánuðinum að bankinn ætlaði sér að koma skuldugum ríkjum Evrópu til hjálpar, ef þörf væri á, með lánveitingum.

Á vefsíðu Wall Street Journal (WSJ) kemur fram að Merkel treysti Mario Draghi, forseta bankaráðs Seðlabanka Evrópu, fyllilega til þess að stýra starfi bankans. Draghi er virtur hagfræðingur með doktorspróf frá MIT, en hann hefur ekki sparað yfirlýsingarnar síðan hann tók við starfi sem bankastjóri, og segir að bankinn muni gera allt sem hann geti til þess að verja evruna.

Sjá má umfjöllun WSJ um þessi mál, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×