Íslenski boltinn

Allt bendir til þess að Katrín og Margrét Lára verði báðar leikfærar á laugardaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið spilar gríðarlega mikilvægan leik í undankeppni EM á Laugardalsvellinum á laugardaginn þar sem sigur tryggir íslensku stelpunum í það minnsta þátttöku í umspili um sæti í úrslitakeppninni í Svíþjóð.

Það hefur verið mikil óvissa í kringum þátttöku fyrirliðans Katrínar Jónsdóttur og markahæsta leikmanns liðsins, Margrétar Láru Viðarsdóttur, í þessum mikilvæga leik. Allt bendir nú til þess að þær geti báðar verið með í leiknum á móti Norður-Írlandi á Laugardalsvelli á laugardaginn.

„Ég er bjartsýn á að geta verið leikfær miðað við hvernig þetta hefur gengið undanfarið en ég geri mér fulla grein fyrir því að það er þjálfarinn sem velur liðið og ég er ekki búin að spila marga leiki á síðustu tveimur mánuðum. Þetta verður bara að koma í ljós því ég ræð þessu ekki á endanum," sagði Katrín fyrir æfingu liðsins í dag. Katrín æfði reyndar ekki í dag en þó ekki vegna lærameiðslanna heldur vegna þess að hún tognaði á ökkla á æfingu í gær.

Það var einnig gott hljóð í Margréti Láru sem var í fyrstu ekki valin í hópinn vegna meiðsla en var síðan bætt við hópinn á þriðjudaginn.

„Ég er komin hingað með landsliðinu. Ég er ánægð með það og vonandi get ég hjálpað liðinu eitthvað," sagði Margrét Lára en hún kom inn á sem varamaður í leik með Kristianstad í byrjun vikunnar.

„Það gekk bara fínt í þessum leik. Ég spilaði einhverjar 20 til 25 mínútur. Ég vissi það á laugardeginum að ég yrði í hópnum með Kristianstad. Ég hafði þá strax samband við Sigga því ég vildi láta hann vita af því að ég væri í hóp og væri mögulega að fara að koma inn á. Ef ég get hjálpað liðinu mínu úti og verið til staðar fyrir það þá er ég að sjálfsögðu til staðar ef kallið kemur frá landsliðsþjálfaranum," sagði Margrét Lára sem var með á æfingunni í dag.

Margrét Lára veit þó ekki frekar en Katrín hvert hlutverk hennar verður í leiknum við Norður-Íra. „Við erum ekkert búin að ræða það og það kemur bara í ljós. Við þurfum að láta æfingarnar þróast og svo velur Siggi bara sitt besta lið á laugardaginn. Maður tekur því bara hvort að maður spilar eða er á bekknum. Ég ætla að sinna mínu hlutverki eins vel og ég get," sagði Margrét Lára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×