Körfubolti

Jordan hættir að skipta sér af öllu hjá Bobcats

Það hefur lítið gengið hjá Charlotte Bobcats síðan Michael Jordan varð eigandi félagsins árið 2010. Töfrar Jordan hafa ekki smogið inn í liðið sem uppskar lélegasta árangur í sögu NBA á síðasta tímabili.

Jordan hefur þótt skipta sér af of mörgum hlutum og meðal annars verið gagnrýndur fyrir leikmannaval. Hann ætlar því að eftirláta öðrum um þá hluti núna.

Það er mikið uppbyggingarstarf fram undan hjá félaginu og spurning hvernig Jordan gengur að skipta sér af hlutum sem hann hefur lofað að láta í friði.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×