Viðskipti erlent

Moody´s heldur lánshæfiseinkunn FIH bankans í ruslflokki

Matsfyrirtækið Moody´s hefur ákveðið að halda lánshæfiseinkunn FIH bankans í Danmörku í ruslflokki. Slíkt eykur ekki líkurnar á að Seðlabanki Íslands endurheimti það sem eftir stendur af sölunni á FIH fyrir tveimur árum síðan.

Eins og oft hefur komið fram seldi Seðlabankinn FIH bankann árið 2010 fyrir 5 milljarða danskra króna. Seðlabankinn fékk FIH bankann í hendur sem veð fyrir neyðarláni til Kaupþings korteri áður en Kaupþing fór í þrot haustið 2008.

Tæpir 2 milljarðar danskra króna af verðinu voru staðgreiddir en afgangurinn var seljendalán sem er háð gengi FIH bankans til ársloka 2014. Það er skemmst frá því að segja að gengi FIH hefur verið afleitt síðan og er bankinn þegar búinn að afskrifa um 70% af seljendaláninu miðað við ársreikning sinn fyrir árið í fyrra.

Í áliti Moody´s segir að þótt FIH bankanum hafi tekist að koma yfir 12 milljörðum danskra króna af fasteignalánum úr sínu bókhaldi og yfir í Bankasýslu Danmerkur séu útlitið ennþá dökkt fyrir bankann.

Bjarne Graven bankastjóri FIH segir í samtali við börsen að Moody´s líti almennt neikvæðum augum á danska bankakerfið. Í því sambandi sjái Moody´s aðeins holurnar í ostinum. Graven segir að hlutverk stjórnar bankans sé nú að sýna að hann sé á réttri braut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×