Viðskipti erlent

Soros segir Þjóðverjum að hrökkva eða stökkva

Hinn þekkti fjárfestir George Soros segir að annaðhvort verði Þjóðverjar sjálfir að yfirgefa evrusvæðið eða sjá til þess að veikari þjóðirnar innan svæðisins fái þá aðstoð sem þær þurfa.

Þetta kemur fram í grein sem Soros skrifar á heimasíðu sína en margir fjölmiðlar hafa vitnað í hana um helgina. Soros segir að Evrópa horfi fram á langa kreppu ef þjóðirnar í suðurhluta evrusvæðisins (Grikkland. Ítalía, Spánn og Portúgal) fái ekki svigrúm til að vaxa út úr erfiðleikum sínum. Þetta verði best gert með frekari afléttingu á skuldabyrði þessara þjóða og því að Þjóðverjar láti af óbilgjörnum kröfum sínum um stöðugt meira aðhald hjá þeim í opinberum fjármálum sínum.

„Þýskalandi á annaðhvort að vera forystuþjóðin í að þróa vaxtarstefnu, pólitíska sameiningu og jöfnun skuldabyrðarinnar og sætta sig við kostnaðinn af slíku eða yfirgefa evrusambandið í góðu samkomulagi við hinar þjóðirnar," segir Soros í samtali við Reuters um greinina á heimasíðu sinni.

Soros telur að ef Þjóðverjar yfirgefi evrusvæðið muni evran verða „mýkri" gjaldmiðill undir forystu Frakka og sem slík myndi sú evra aðstoða fyrrgreindar þjóðir við að minnka innflutning sinn og auka útflutningstekjurnar á móti.

Soros telur að miðað við núverandi stöðu séu allar líkur á að kreppan á evrusvæðinu standi í fimm til tíu ár í viðbót.

Soros mun viðra þessar skoðanir sínar í ræðu sem hann heldur í Berlín í dag en yfirskrift þeirrar ræðu er "Harmleikur Evrópusambandsins".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×