Viðskipti erlent

Mestu árásir tölvuþrjóta í sögunni á stórbanka í Bandaríkjunum

Nokkrir stórbankar í Bandaríkjunum hafa orðið fyrir umfangsmestu árásum tölvuþrjóta í sögunni. Vegna árásanna hafa heimasíður þessarar banka meir og minna lamast frá því í síðustu viku.

Fjallað er um málið á vefsíðunni CNNMoney. Þar segir að fyrstu árásinni hafi verið beint gegn Bank of America en að síðan hafi tölvuþrjótarnir með skipulögðum hætti ráðist á JPMorgan Chase, Wells Fargo, U.S. Bank og PNC Bank. Heimasíða síðastnefnda bankans liggur enn niðri.

Fram kemur á CNNMoney að algengt sé að tölvuþrjótar ráðist á heimasíður banka og reyni að brjótast inn í tölvukerfi bankana gegnum síðurnar. Því hafi bankarnir yfirleitt bestu varnir sem til eru gegn slíkum árásum. Að þessu sinni höfðu tölvuþrjótarnir hinsvegar betur.

Tölvuþrjótarnir munu hafa notað fleiri þúsundir af öflugum netþjónum sem þeir beindu að bönkunum sem urðu fyrir árásunum. Svo virðist sem árásunum hafi eingöngu verið ætlað að slá út heimasíður bankanna en ekki til að reyna að komast inn í tölvukerfi þeirra. Þannig virkuðu greiðslukerfi þessara banka sem og hraðbankar þeirra á meðan á þessum árásum stóð.

Ekki er vitað hver stóð að baki þessum árásum en einn sérfræðingurinn sem CNNMoney ræddi við til taldi þær koma frá Íran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×