Viðskipti erlent

Flestir Danir að breytast í Jóakim Aðalönd

Bankainnistæður almennings í Danmörku hafa aldrei vaxið hraðar en í ár. Svo virðist sem hver Dani sé að breyta sér í Jóakim Aðalönd.

Frá áramótum hafa innlagnir á bankareikning almennings í Danmörku aukist um nær 42 milljarða danskra króna eða sem svarar til rúmlega 900 milljarða króna. Nettóinneign almennings í landinu samsvarar því að hver Dani eigi að meðaltali yfir 131 þúsund danskar krónur eða um 2,9 milljónir króna á bankareikningi sínum.

Í frétt um málið á vefsíðu avisen segir að stór hluti af þessari aukningu í ár stafi af úttektum almennings á fé úr sérstökum eftirlaunasjóðum sem verkalýðsfélögin komu á fyrir um 40 árum síðan en hafa nú verið lagðir niður. Þær úttektir nema um 23 milljörðum danskra króna og hafa þær rokið beint inn á bankareikninga sem sparnaður ef harðna skyldi á dalnum.

Frederik Pedersen hjá Efnahagsráði verkalýðsfélaganna segir að þessi mikli sparnaður séu hinsvegar slæmar fréttir fyrir efnahagslíf landsins. Sparnaðurinn skili hvorki hagvexti né skapi fleiri störf en það er einmitt það sem Danir hafa þörf á í augnablikinu.

Pedersen segir að ef ekki nema brot af þessum sparnaði yrði notaður til dæmis til kaupa á vöru og þjónustu eða fasteignakaupa myndi slíkt skila sér út í efnahagslífið um leið með hagvexti og auknum störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×