Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Singapúr

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton ræsir fremstur í kappakstrinum á morgun.
Hamilton ræsir fremstur í kappakstrinum á morgun. nordicphotos/afp
McLaren-ökuþórinn Lewis Hamilton ræsir fremstur í singapúrska kappakstrinum á morgun. Hann ók hraðast um götubrautina í Singapúr í tímatökum í dag. Pastor Maldonado á Williams var næst fljótastur.

"Brautin er mjög erfið," sagði Hamilton eftir tímatökurnar. "Ég var mjög ánægður með að hafa nýtt dekkin nógu vel til að setja bílinn á ráspól."

Það dró til tíðinda þegar heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull náði aðeins þriðja besta tíma, hálfri sekúntu á eftir Hamilton, og 0,1 á eftir Maldonado. Aðeins til að undirstrika frábæra frammistöðu Maldonado þá skákaði hann einnig Fernando Alonso á Ferrari og Jenson Button á McLaren.

Vettel ók hraðast um brautina í öllum æfingum helgarinnar. Strax í fyrstu lotunni var ljóst að hann yrði mjög sterkur í tímatökunni og að Hamilton væri sá eini sem mundi geta veitt honum alvarlega samkeppni.

Liðstjórar þurftu að taka erfiðar ákvarðanir enda var tímatakan sérstök að því leiti að brautin varð hraðari og hraðari með hverjum hring sem ökumenn fóru. Dekkjaval og tímasetningar skiptu því gríðarlegu máli ef hámarka átti möguleika liðsins.

Kimi Raikkönen á Lotus komst ekki í síðustu lotu tímatökunnar og ræsir tólfti. Liðsfélagi hans, Romain Grosjean, snýr aftur eftir að hafa verið bannað að keppa í síðasta móti. Hann ræsir áttundi.

Mercedes-ökuþórarnir tveir, Michael Schumacher og Nico Rosberg, ræsa í níunda og tíunda sæti. Hvorugur setti tíma í síðustu lotunni. Það er að öllum líkindum til þess að hámarka möguleikana í keppninni sjálfri enda hafa Mercedes-bílarnir farið illa með dekkin í mótum ársins.

Felipe Massa komst ekki upp úr annari lotu tímatökunnar. Hann er undir gríðarlegri pressu frá Ferrari-liðinu og Fernando Alonso, liðsfélaga sínum. Massa ræsir í 13. sæti í kappakstrinum á morgun en hann var öryggið uppmálað þegar rætt var við hann áður en hann steig upp í bílinn.



ÖkuþórBíll / VélTímiBil
1Lewis HamiltonMcLaren/Mercedes1'46.362-
2Pastor MaldonadoWilliams/Renault1'46.8040.442
3Sebastian VettelRed Bull/Renault1'46.9050.543
4Jenson ButtonMcLaren/Mercedes1'46.9390.577
5Fernando AlonsoFerrari1'47.2160.854
6Paul Di RestaForce India/Mercedes1'47.2410.879
7Mark WebberRed Bull/Renault1'47.4751.113
8Romain GrosjeanLotus/Renault1'47.7881.426
9M.SchumacherMercedes--
10Nico RosbergMercedes--
11Nico HülkenbergForce India/Mercedes1'47.9751.613
12Kimi RäikkönenLotus/Renault1'48.2611.899
13Felipe MassaFerrari1'48.3441.982
14Sergio PérezSauber/Ferrari1'48.5052.143
15Daniel RicciardoToro Rosso/Ferrari1'48.7742.412
16Jean-Eric VergneToro Rosso/Ferrari1'48.8492.487
17Bruno SennaWilliams/Renault--
18Kamui KobayashiSauber/Ferrari1'49.9333.571
19Vitaly PetrovCaterham/Renault1'50.8464.484
20H.KovalainenCaterham/Renault1'51.1374.775
21Timo GlockMarussia/Cosworth1'51.3705.008
22Charles PicMarussia/Cosworth1'51.7625.4
23N.KarthikeyanHRT/Cosworth1'52.3726.01
24Pedro de la RosaHRT/Cosworth1'53.3556.993



Fleiri fréttir

Sjá meira


×