Viðskipti erlent

Gates er áfram auðugasti Bandaríkjamaðurinn

Bill Gates er áfram auðugasti maður Bandaríkjanna samkvæmt nýbirtum lista Forbes tímaritisins um 400 auðugustu einstaklinga landsins.

Raunar eru engar breytingar á fimm efstu sætunum á þessum lista frá því í fyrra. Auður Gates er metinn á 66 milljarða dollara eða 8.000 milljarða kr.

Í öðru sæti er Warren Buffett með auð upp á 46 milljarða dollara og í þriðja sætinu erLarry Ellison stofnandi Oracle með auð upp á 41 milljarð dollara.

Í Forbes kemur fram að heildarauður þessarar 400 einstaklinga hafi aukist um 13% milli ára og nemi nú 1,700 milljöðrum dollara. Það þýðir að hver þeirra hefur auðgast að meðaltali um 400 milljónir dollara eða 49 milljarða króna milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×