Körfubolti

Howard lætur Shaq heyra það

Shaq og Howard í leik.
Shaq og Howard í leik.
Körfuboltagoðsögnin Shaquille O'Neal hefur ekki alltaf farið mjúkum höndum um Dwight Howard, leikmann Lakers. Howard hefur aldrei skilið meðferðina sem hann fær hjá Shaq.

Shaq hefur alla tíð verið í uppáhaldi hjá Howard en sú ást hefur alls ekki verið endurgoldin. Howard hefur þó látið það eiga sig að svara Shaq. Þangað til núna.

"Shaq er búinn með sinn feril. Það er kominn tími til að horfa fram á veginn. Hann hataði þegar eldri leikmenn voru að gagnrýna hann og hvernig hann spilaði. Nú er hann að gera nákvæmlega það sama sjálfur," sagði Howard sem hefur mátt þola ýmislegt frá Shaq síðan þeir voru báðir að spila í deildinni.

"Hann ætti bara að láta þetta eiga sig. Það er enginn tilgangur með því að drulla yfir mig. Hann er búinn með sinn tíma og ætti bara að slaka á núna."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×