Körfubolti

Wade hættur að spila í Nike | Semur við Li-Ning

Jordan og Wade hressir.
Jordan og Wade hressir.
Michael Jordan var átrúnaðargoð Dwyane Wade, leikmanns Miami Heat, líkt og fleiri leikmanna. Wade var því upp með sér er hann fékk skósamning við Nike undir merkjum Jordan.

Það kom í hlut Wade að spila í Air Jordan-skónum frægu og það gerði hann með stolti. Nú er þeim kafla lokið.

Wade hefur slitið samstarfi við Jordan og er kominn í samstarf við kínverska fyrirtækið Li-Ning. Hann verður aðalandlit þess skóframleiðanda en Li-Ning ætlar sér stóra hluti á bandaríska markaðnum.

Stærstu stjörnur Li-Ning til þessa hafa verið Evan Turner og Jose Calderon. Það skiptir því skóframleiðandann miklu að hafa landað Wade.

Wade mun hagnast fjárhagslega á samningnum og ekki skemmir fyrir að hann verður líklega risastjarna í Kína í kjölfarið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×