Körfubolti

Kobe: Ég er enn kóngurinn í Lakers

Kobe mun spila áfram á sólógítar fyrir Lakers í vetur.
Kobe mun spila áfram á sólógítar fyrir Lakers í vetur.
Hinn 34 ára gamli leikmaður LA Lakers, Kobe Bryant, er að hefja sitt sautjánda tímabil í NBA-deildinni. Hann er þó enn einn af bestu leikmönnum deildarinnar.

Lakers mætir með talsvert breytt lið til leiks í vetur. Þeir Dwight Howard og Steve Nash eru komnir til liðsins.

"Ég var spurður að því á dögunum hver væri aðalmaðurinn í liðinu. Þetta er enn mitt lið en ég vil sjá til þess að þetta verði liðið hans Dwight þegar ég hætti. Ég vil kenna honum allt sem ég kann áður en skórnir fara á hilluna," sagði Kobe en Howard er afar spenntur fyrir komandi vetri með Lakers.

"Ég bíð spenntur eftir því að læra af Kobe. Hann er einn af bestu leikmönnum sögunnar og ég held að þetta verði frábært," sagði Howard.

"Ég veit að Kobe verður harður við mig en ég ætlast líka til þess. Ég vil að hann verði harður. Það mun gera mig að betri leikmanni."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×