Norðurá: Samningi við SVFR slitið; áin líklega boðin út 19. október 2012 12:54 Við Laxfoss í Norðurá. Mynd / Trausti Hafliðason
Veiðifélaga Norðurár hefur hafnað ósk Stangaveiðifélags Reykjavíkur um lækkun á leiguverði. Þar með gæti farið svo að 66 ára samstarfi þessara aðila ljúki næsta sumar. Vefsíða Skessuhorns greinir frá þessu. „Slitnað hefur upp úr samkomulagi milli veiðiréttareigenda við Norðurá í Borgarfirði og Stangaveiðifélags Reykjavíkur um leiguverð fyrir ána," segir á vef Skessuhorns. „Því hafa þessir aðilar ákveðið í sameiningu að sá tveggja ára samningur sem undirritaður var síðastliðið vor um leigu árinnar, gildi aðeins fyrir veiðisumarið 2013 og eftir það falli samningurinn úr gildi." Birna G. Konráðsdóttir, formaður Veiðifélags Norðurár, segist í samtali við Skessuhorn að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvort áin verði auglýst í útboði eða leigt út með öðrum hætti. „Fyrst svona stendur á munum við gefa áhugasömum aðilum færi á að setja sig í samband við okkur, vilji þeir taka ána á leigu," segir Birna. „Það verður að koma í ljós á næstu vikum hvort einhver sýni því áhuga, án þess að um formlegt útboð verði að ræða. Ef slíkur áhugi sýnir sig ekki mun áin væntanlega verða boðin út. Full samstaða var í hópi veiðiréttareigenda Norðurár að hafna ósk SVFR um lækkun á leiguverði." Það lá fyrir að samkvæmt samningi SVFR við Veiðifélagið átti leigan á Norðurá að hækka á næstu misserum. Samkvæmt Skessuhorni treystir Stangaveiðifélagið sér ekki til þess að efna samninginn miðað við söluhorfur. Í sumar veiddust 953 laxar í Norðurá sem er lakasta veiði í Norðurá í 23 ár.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Batnandi útlit í Eyjafjarðará Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði 19 laxa dagur í Hrútafjarðará Veiði Veiddi 3.2 kg bleikju í Hlíðarvatni Veiði