Fótbolti

Inter Milan vann öruggan sigur á Bologna | Úrslit dagsins á Ítalíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Diego Milito gerði eitt mark fyrir Inter í dag.
Diego Milito gerði eitt mark fyrir Inter í dag. Mynd. Getty Images
Sex leikur fóru fram í ítölsku seríu A-deildinni í knattspyrnu í dag en þar ber helst að nefna öruggur sigur Inter Milan á Bologna 3-1.

Andrea Ranocchia, Diego Milito og Esteban Cambiasso gerðu allir sitt markið hver fyrir Inter Milan í leiknum en Nicolo Cherubin skoraði eina mark Bologna í leiknum.

Fiorentina vann flottan sigur á Lazio 2-0 en Adem Ljajic og Luca Toni gerðu báðir sitt markið hvor í leiknum fyrir Fiorentina.

Juventus er í efsta sæti deildarinnar með 25 stig, fjórum stigum á undan Inter sem er í því öðru.

Úrslit dagsins:

Catania - Juventus - 0 - 1

Bologna - Inter - 1 - 3

Fiorentina - Lazio - 2 - 0

Pescara - Atalanta - 0 - 0

Sampdoria - Cagliari - 0 - 1

Torino - Parma - 1 - 3




Fleiri fréttir

Sjá meira


×