Viðskipti erlent

Gaf Central Park í New York yfir 12 milljarða

Vogunarsjóðsstjórinn John Paulson hefur gefið samtökunum sem annast rekstur Central Park garðsins í New York 100 milljónir dollara eða um 12,6 milljarða króna.

Þessi gjöf er sú stærsta sem garðurinn hefur fengið frá upphafi. Gjöfin var afhent við hátíðlega athöfn í gærkvöldi og við það tækifæri sagði Paulson að Central Park væri lýðræðislegasta stofnun New York borgar og að gjöf hans kæmi öllum borgarbúum þar til góða.

Paulson er í hópi auðugustu manna heimsins en Forbes tímaritið metur auð hans vera yfir 12 milljarðar dollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×