Viðskipti erlent

Forsætisráðherra Spánar horfir til Suður-Ameríku eftir fjárfestingu

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar.
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar.
Forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, horfir nú til Suður-Ameríku þegar kemur að að því að efla erlenda fjárfestingu, en í ræðu sem hann hélt á laugardaginn sagði hann að spænsk yfirvöld myndu taka fjárfestingu frá Suður-Ameríku „opnum örmum".

Greint er frá ræðu hans í The New York Times í dag.

Ólíkt Evrópu þá einkennist staða efnahagsmála í Suður-Ameríku af miklum hagvexti þessi misserin. Samkvæmt uppfærðri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þá er reiknað með því að hagvöxtur verði tæplega fjögur prósent í Suður-Ameríku á næsta ári en gert er ráð fyrir að hann verði 3,2 prósent á þessu ári.

Staða efnahagsmála er erfið á Spáni þessi misserin, og er það helst mikið atvinnuleysi sem veldur stjórnvöldum áhyggjum. Það mælist nú um 25 prósent, en mest er það meðal ungs fólks. Meðaltalsatvinnuleysi í Evrópu er ríflega 11 prósent og er gert ráð fyrir því að það muni vaxa frekar en minnka á næsta ári, ekki síst vegna þess að þá mun áhrifa af niðurskurðaraðgerðum gæta víða í álfunni í meira mæli en nú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×