Viðskipti erlent

Lopapeysuævintýri í uppsiglingu í Færeyjum

Graböl gaf nýlega Camillu Bowles eiginkonu Karls Bretaprins færeyska lopapeysu.
Graböl gaf nýlega Camillu Bowles eiginkonu Karls Bretaprins færeyska lopapeysu.
Lopapeysuævintýri er í uppsiglingu í Færeyjum í tengslum við frumsýningu á dönsku glæpaþáttunum Forbyrdelssen eða Glæpurinn í BBC.

Í þessum þáttum er höfuðpersónan Sara Lund hin einmanna lögreglukona, sem danska leikkonan Sofie Graböl leikur, oftast klædd í færeyska lopapeysu með klassískum munstrum.

Breska blaðið Daily Mail segir að búast megi við stóraukinni eftirspurn eftir þessum lopapeysum á Bretlandseyjum eftir að sýningar á þáttunum eru hafnar þar í landi.

Það er prjónastofan Guðrún og Guðrún í Þórshöfn í Færeyjum sem prjónar þessar lopapeysur fyrir framleiðendur dönsku sjónvarpsþáttanna. Þar að auki eru peysurnar til sölu í mörgum Evrópulöndum en þær kosta að meðaltali um 300 evrur eða ríflega 50.000 krónur stykkið.

Daily Mail segir að lopapeysurnar séu þegar orðnar vinsælar meðal breskra aðalsmanna í framhaldi af því að Graböl gaf nýlega Camillu Bowles eiginkonu Karls Bretaprins eina slíka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×