Viðskipti erlent

SAS flugfélagið bjargaðist fyrir horn í nótt

Allar líkur eru á að SAS flugfélaginu hafi tekist að bjarga sér fyrir horn í nótt.

Samningafundir við forystumenn verkalýðsfélaga starfsmanna félagsins stóðu yfir í alla nótt. Í morgun var tilkynnt að náðst hefði sögulegur samningur við verkalýðsfélög flugmanna í Danmörku, Svíþjóð og Noregi og við verkalýðsfélög flugliða í Noregi og Svíþjóð. Aðeins á eftir að ganga frá samningum við verkalýðsfélag flugliða í Danmörku.

Hefðu þessir samningar ekki tekist var SAS reiðubúið að lýsa sig gjaldþrota í dag. Samningarnir fela í sér verulegar kjaraskerðingar fyrir starfsmennina en þeir voru liður í umfangsmiklum sparnaðaraðgerðum félagsins.

Fyrrgreindir starfsmenn munu taka á sig allt að 15% launaskerðingu, laun millistjórnenda munu lækka um 17% og forstjórinn tekur á sig 20% launalækkun. Þá mun vinnuskylda starfsmannanna aukast úr 42 tímum á viku og upp í 47,5 tíma. Auk þessa mun eftirlaunaaldurinn hækka úr 60 árum og í 65 ár.

Þessir samningar og aðrar sparnaðaraðgerðir sem kynntar voru í síðustu viku eru forsenda þess að SAS fái lán frá sex bönkum upp á rúmlega 4 milljarða danskra kr. eða tæplega 90 milljarða króna til að halda rekstri sínum gangandi.

Eftir að ljóst var í morgun að nær öll verkalýðsfélögin hefðu samið hækkaði verð á hlutabréfum SAS um ríflega 20% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×