Körfubolti

Hægur bati hjá Nowitzki

Þjóðverjinn Dirk Nowitzki fór í aðgerð á hné í október og þá var áætlað að hann yrði sex vikur að jafna sig. Nú er liðinn mánuður og leikmaðurinn viðurkennir að batinn sé hægur og hann verði lengur frá.

"Ég verð að halda áfram að vera þolinmóður og hlýða fyrirmælum lækna. Halda áfram í endurhæfingu. Ég hélt í fyrstu að ég yrði fljótari að jafna mig þar sem þetta er mín fyrsta hnéaðgerð en það er greinilega ekki á allt kosið," sagði Nowitzki.

Liði Nowitzki, Dallas Mavericks, hefur gengið þolanlega án hans og er búið að vinna fjóra leiki og tapa fjórum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×