Viðskipti erlent

Konur með hærri laun en karlar í nær þriðjungi hjónabanda

Hlutfall þeirra hjónabanda í Danmörku þar sem konan hefur hærri laun en karlinn hefur meir en tvöfaldast á síðustu áratugum.

Þetta kemur fram í nýrri úttekt sem unnin var á vegum efnahagsráðs dönsku verkalýðshreyfingarinnar. Þar segir að árið 1985 voru konur með hærri laun en eiginmenn sínir í um 14% af öllum hjónaböndum. Í dag er þetta hlutfall komið upp í 31%.

Fjallað er um úttekt þessa í Berlinske Tidende. Þar er haft eftir Elisabeth Möller Jensen forstjóra Kvinfo að þessi þróun munu halda áfram á komandi árum. Jensen á von á að ekki líði mörg ár enn þar til hlutfallið sé orðið jafnt, það er konur hafi hærri laun en eiginmenn sínir í 50% tilvika.

Berlinske ræðir einnig við Kenneth Reinecke lektor í mannfræði við háskólann í Hróarskeldu. Hann bendir m.a. á að ef það gerist í síauknum mæli að konan hafi hærri laun en maður hennar geti slíkt valdið vandræðum í hjónabandinu og jafnvel stuðlað að auknum skilnuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×