Viðskipti erlent

Fréttaskýring: Vesturlönd í vanda en Asía dregur vagninn

Magnús Halldórsson skrifar
Frá Peking höfuðborg Kína. Stærðirnar eru miklar í Kína, þar sem 20 prósent íbúa jarðar býr. Því er spáð, í nýju sérriti The Economist um horfur í efnahagsmálum og stjórnmálum fyrir árið 2013, að hagvöxtur verið 8,6 prósent í Kína á næsta ári.
Frá Peking höfuðborg Kína. Stærðirnar eru miklar í Kína, þar sem 20 prósent íbúa jarðar býr. Því er spáð, í nýju sérriti The Economist um horfur í efnahagsmálum og stjórnmálum fyrir árið 2013, að hagvöxtur verið 8,6 prósent í Kína á næsta ári.
Á meðan staða efnahagsmála á Vesturlöndum, þ.e. í Evrópu og Bandaríkjunum, einkennist af erfiðleikum og veikum eða neikvæðum hagvexti, er staðan að lagast víða í Asíu. Þetta sýnir ítarleg umfjöllun The Economist, en sérrit blaðsins um horfur í efnhagsmálum og stjórnmálum á alþjóðavísu fyrir árið 2013, kom út í vikunni.

40 prósent

Sé horft sérstaklega til Asíu þá er því spáð að hagvöxtur í Kína verði 8,6 prósent á næsta ári, 6,5 prósent í Indlandi og 6,3 prósent í Indónesíu. Samtals býr um 40 prósent af íbúum jarðar í þessum þremur löndum, eða ríflega 2,8 milljarðar manna af ríflega sjö milljarða heildar íbúafjölda. Ríflega 1,3 milljarðar manna í Kína, 1,24 milljarðar í Indlandi og 250,8 milljónir í Indónesíu.

Þau smærri líka

Þá eru hagvaxtarhorfur fyrir ýmis smærri ríki Asíu einnig góðar, enda efnhagur margra þeirra um margt háður gangi mála í risunum Indlandi og Kína. Þannig er því spáð að hagvöxtur í Malasíu verði 4,6 prósent, í Sri Lanka 6,8 prósent, Tævan 3,6 prósent, Víetnam sex prósent, Tælandi 4,7 prósent, Suður-Kóreu 3,7 prósent og Singapor fjögur prósent, svo eitthvað sé nefnt.

240 prósent

Það er helst í Japan þar sem hagvöxtur hefur lítill verið, en því er spáð að hann verði 1,2 prósent á næsta ári, en efnahagur Japans er mun háðari gangi efnahagsmála í Bandaríkjunum og Evrópu heldur en önnur lönd Asíu. Helsta áhyggjuefnið í Japan, samkvæmt úttekt The Economist, eru miklar opinberar skuldir en þær nema nú ríflega 240 prósentum af árlegri landsframleiðslu.

Evrópa í erfiðleikum

Sé sérstaklega horft á einstaka heimsálfur þá eru horfurnar bestar í Asíu, Afríku sunnan Sahara og í Suður-Ameríku. Því er spáð að hagvöxtur í Norður-Ameríku, þ.e. Bandaríkjunum og Kanada, verði 2,2 prósent, 3,9 prósent í Suður-Ameríku, 3,8 prósent í Mið-Austurlöndum og norðurhluta Afríku, 4,8 prósent í Afríku sunnan Sahara, 6,4 prósent í Asíu, 2,9 prósent í Austur-Evrópu og 0,3 prósent í Vestur-Evrópu. Verstu hagvaxtarhorfurnar eru í Evrópu þegar allt er samantekið. Í ofanálag segir í skrifum The Economist að pólitísk óvissa sé óvíða meiri en í Evrópu, sem muni draga kraft úr hagkerfum stærstu ríkja álfunnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×