NBA: Lakers steinlá á móti Sacramento - fjórir framlengdir í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2012 09:00 Kobe Bryant. Mynd/AP
Los Angeles Lakers tapaði illa á móti Sacramento Kings í NBA-deildinni í nótt en liðið var búið að vinna þrjá leiki í röð. Fjórir leikir voru framlengdir en Miami Heat, Atlanta Hawks og Indiana Pacers unnu öll sigra í framlengingu auk þess að Oklahoma City Thunder hafði betur í framlengdum toppslag á móti Los Angeles Clippers. New York Knicks tapaði á móti Dallas og San Antonio Spurs vann Boston Celtics.Kobe Bryant skoraði 38 stig en það var ekki nóg þegar Los Angeles Lakers steinlá 97-113 á útivelli á móti Sacramento Kings. Marcus Thornton var með 23 stig hjá Kings, Tyreke Evans skoraði 18 stig og Jason Thompson var með 13 stig og 10 fráköst. Jodie Meeks skoraði 15 stig fyrir Lakers en Dwight Howard var aðeins með 7 stig.Kevin Durant skoraði 35 stig og Russell Westbrook bætti við 23 stigum þegar Oklahoma City Thunder vann 117-111 útisigur á Los Angeles Clippers eftir framlengingu. Oklahoma City var fyrir leikinn búið að tapa báðum sínum leikjum á móti toppliðum. Blake Griffin skoraði mest fyrir Clippers eða 23 stig en Jamal Crawford var með 20 stig. Los Angeles Clippers var búið að vinna sex leiki í röð fyrir leikinn.LeBron James og Dwyane Wade skoruðu báðir 28 stig þegar Miami Heat vann Milwaukee Bucks 113-106 eftir framlengdan leik en liðið missti niður 18 stiga forskot í leiknum. James var einnig með 10 fráköst og 8 stoðsendingar. Chris Bosh var með 24 stig og 18 fráköst og Ray Allen skoraði 17 stig en Miami hefur nú unnið alla fimm heimaleiki sína á tímabilinu. John Henson var með 17 stig og 18 fráköst hjá Milwaukee og Brandon Jennings skoraði 19 stig.Tony Parker skoraði 26 stig og Tim Duncan var með 20 stig og 15 fráköst þegar San Antonio Spurs vann Boston Celtics 112-100. Tiago Splitter var með 23 stig fyrir Spurs-liðið en hjá Boston var Rajon Rondo með 22 stig og 15 stoðsendingar og Paul Pierce skoraði 19 stig. Þetta var fjórði leikurinn í röð þar sem Boston fær á sig meira en hundrað stig.O.J. Mayo (27 stig) og Vince Carter (25 stig) voru í aðalhlutverki þegar Dallas Mavericks vann New York Knicks 114-111 en þetta var aðeins annað tap New York liðsins á tímabilinu. Carmelo Anthony skoraði 23 stig fyrir Knicks og Tyson Chandler var með 21 stig og 13 fráköst.James Harden skoraði 28 stig þegar Houston Rockets vann Chicago Bulls 93-89 en Houston-liðið var búið að tapa þremur leikjum í röð fyrir leikinn. Nate Robinson skoraði mest fyrir Chicago eða 21 stig en þetta er í fyrsta sinn sem liðið tapar þremur leikjum í röð síðan að Tom Thibodeau tók við liðinu.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats - Toronto Raptors 98-97 Orlando Magic - Detroit Pistons 90-74 Cleveland Cavaliers - Philadelphia 76ers 92-83 Indiana Pacers - New Orleans Hornets 115-107 (framlengt) Boston Celtics - San Antonio Spurs 100-112 Atlanta Hawks - Washington Wizards 101-100 (framlengt) Miami Heat - Milwaukee Bucks 113-106 (framlengt) Oklahoma City Thunder - Los Angeles Clippers 117-111 (framlengt) Houston Rockets - Chicago Bulls 93-89 Minnesota Timberwolves - Denver Nuggets 94-101 Dallas Mavericks - New York Knicks 114-111 Phoenix Suns - Portland Trail Blazers 114-87 Sacramento Kings - Los Angeles Lakers 113-97 Golden State Warriors - Brooklyn Nets 102-93
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira