Viðskipti erlent

Jean-Claude Juncker hættir sem formaður Evruhópsins

Jean-Claude Juncker hefur ákveðið að hætta sem formaður Evruhópsins svokallaða en hann er myndaður af fjármálaráðherrum allra landanna á evrusvæðinu.

Juncker mun hafa tilkynnt fjármálaráðherrunum þetta á fundi Evruhópsins í Brussel í gærdag og að hann láti af embættinu um áramótin. Jafnframt hvatti hann ráðherrana til að velja eftirmann sinn.

Juncker fékk þessa stöðu sína árið 2005 þegar hann var sjálfur fjármálaráðherra Luxemborgar. Hann hélt síðan stöðunni þótt hann hætti sem fjármálaráðherra árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×