LeBron James íþróttamaður ársins hjá Sports Illustrated Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. desember 2012 18:00 LeBron með gullverðlaun sín á Ólympíuleikunum í London í sumar. Nordicphotos/Getty
Körfuknattleiksmaðurinn LeBron James hefur verið valinn íþróttamaður ársins hjá íþróttablaðinu Sports Illustrated í Bandaríkjunum. Árið 2012 var afar sigursælt hjá skotbakverðinum sem vann allt sem hægt var að vinna. Hann varð NBA meistari ásamt liði sínu Miami Heat, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar, vann Ólympíugull með Bandaríkjunum og var valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar. James sagði við AP fréttastofuna að valið hefði komið honum á óvart. Ekki vegna þess að honum þætti lítið til eigin afreka koma. James taldi félagaskipti sín frá Cleveland til Miami Heat árið 2010, sem ollu miklu fjaðrafoki, geta komið í veg fyrir útnefninguna. „Ég man eins og það hefði gerst í gær hvernig þakið féll saman þegar ég samdi við Miami Heat," sagði James. „Að sjá hvernig ég ásamt liðsfélögum mínum og öllum öðrum í kringum mig gerðum við þakið, komast hingað og taka við svo virðulegum verðlaunum er stórkostlegt," sagði James. Þetta er í fyrsta skipti sem körfuknattleiksmaður hlýtur nafnbótina síðan 2006. Þá féll hún í skaut Dwyane Wade, liðsfélaga James hjá Miami. Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Muhammad Ali, Jack Nicklaus, Wayne Gretzky, Tom Brady og Michael Phelps. Umfjöllun Sports Illustrated um íþróttamann ársins má lesa hér.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Íslenski boltinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Sjá meira