Körfubolti

Howard klúðraði leiknum gegn sínu gamla félagi

Howard svekktur í nótt.
Howard svekktur í nótt.
Dwight Howard mátti sætta sig við að tapa fyrir sínu gamla liði í nótt. Orlando Magic kom þá í heimsókn í Staples Center og lagði LA Lakers af velli. Tapið mátti skrifa á hann að stóru leyti.

Um miðjan þriðja leikhluta fór Orlando viljandi að brjóta á Howard sem í kjölfarið klúðraði 10 af 18 vítum. Magic nýtti sér það til þess að sigla fram úr.

Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers en var með slaka skotnýtingu. Hitti úr 12 af 27 skotum sínum utan af velli en hann hefur verið að hitta illa upp á síðkastið.

David Beckham var mættur á völlinn degi eftir að hann vann MLS-bikarinn með LA Galaxy. Það var staðið upp og klappað fyrir honum fyrir leik.

Úrslit:

LA Lakers-Orlando 103-113

NY Knicks-Phoenix 106-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×