Sakaður um að hafa beitt starfsmenn Glitnis þrýstingi í Aurum-málinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. desember 2012 15:57
Með sex milljarða lánveitingu frá Glitni banka til að fjármagna kaup FS38 á 25,7% hlut Fons í Aurum Holding var áhættunni af kaupunum velt yfir á Glitni banka. Þetta kemur fram í ákæru sem sérstakur saksóknari gaf út fyrir helgi í Aurum málinu. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arngrímsson, þáverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis banka, eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánsins. Í ákærunni kemur fram að lánið hafi ekki fengist endurgreitt og telja verði umrædda fjármuni bankanum að stærstum hluta glataða þar sem hlutur FS38 ehf. í Aurum Holdings hafi orðið verðlaus á árinu 2009 við það að lánadrottnar félagsins tóku það yfir gegn niðurfærslu alls hlutafélagsins í eitt sterlingspund. Þá hafi skiptum á þrotabúi FS38 verið lokið án þess að nokkuð kæmi upp í lýstar kröfur auk þess sem bú Fons hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta. Jón Ásgeir Jóhannesson er ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum Lárusar og Magnúsar Arnars, en til vara fyrir hylmingu og til þrautavara fyrir peningaþvætti, með því að hafa, í krafti áhrifa sinna í Glitni beitt Lárus og Bjarna fortölum og þrýstingi og hvatt til þess persónulega og með liðsinni Jóns Sigurðssonar, varaformanns stjórnar Glitnis banka, og Gunnars Sigurðssonar, forstjóra Baugs, að Lárus og Magnús samþykktu að veita lánið. Í ákæru, sem fjölmiðlar fengu senda í dag, segir að Jón Ásgeir hafi ráðið yfir 40% af hlutafé bankans í gegnum félög sem hann, fjölskylda hans og viðskiptafélagar áttu meirihluta í og stjórnuðu. Honum hafi ekki geta dulist að með lánveitingunni væru Lárus og Magnús Arnar að misnota aðstöðu sína og valda bankanum verulegri fjártjónshættu. Jón Ásgeir hafi fengið um milljarð af lánsfjárhæðinni inn á reikning sinn sem hann hafi nýtt til að greiða rúmlega 700 milljóna ótryggða yfirdráttaskuld sína hjá Glitni. Þannig hafi Jón Ásgeir fengið hlut af ávinningi af brotinu og notið hagnaðarins. Bjarni Jóhannesson, þáverandi viðskiptastjóri hjá Glitni er ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikunum með því að hafa vegna þrýstings frá Jóni Ásgieiri og með samþykki Lárusar, undirbúið lánveitinguna. Þegar Vísir leitaði viðbragða hjá Jóni Ásgeiri eftir birtingu ákærunnar í dag, sagði hann að sín sjónarmið hefðu komið fram í Fréttablaðinu á föstudag. Hann hefði ekkert um málið að segja umfram það.
Aurum Holding málið Tengdar fréttir Lárus og Magnús Arnar ákærðir sem aðalmenn Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fjórum mönnum í Aurum-málinu svokallaða, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Magnúsi Arnari Arngrímssyni og Bjarna Jóhannessyni. Þeir eru ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við sex milljarða lánveitingu Glitnis í maí 2008. 13. desember 2012 17:26 Fjórir ákærðir fyrir umboðssvik Þrír fyrrum stjórnendur Glitnis og fyrrum stjórnarformaður aðaleiganda bankans hafa verið kærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim. Málið snýst um sex milljarða króna lánveitingu til kaupa á Aurum Holding. 14. desember 2012 00:01 Jón Ásgeir segir sakamálið skáldað Jón Ásgeir Jóhannesson segir í yfirlýsingu sem hann sendi til Fréttablaðsins að Aurum málið sé skáldað sakamál. Hann segir að sakarefni sem á sig eru borin standist ekki skoðun. 14. desember 2012 14:30 Sérstakur saksóknari tjáir sig ekki um rannsóknina á Aurum Fram hefur komið í fréttum að grunur leikur á að Glitnir hafi veitt félaginu FS38 sex milljarða lán árið 2008 til kaupa á eignarhlut Fons í breska félaginu Aurum Holdings, sem er umsvifamikið fyrirtæki í rekstri skartgripaverslana. Bæði Fons og FS38 voru í eigu Pálma Haraldssonar. Grunsemdir eru um að kaupverðið hafi verið margfalt hærra en raunvirði hlutarins og að lánveitingin hafi meðal annars verið framkvæmd til að losa um tvo milljarða króna í reiðufé, annan fyrir Pálma og hinn fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson.Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, vill ekkert tjá sig um stöðu Aurum málsins. Fréttavefur DV fullyrti í kvöld að búið væri að gefa út ákæru í málinu. Ekki væri vitað hverjir eru ákærðir. 12. desember 2012 22:31 Jón Ásgeir og Lárus ákærðir vegna Aurum Sérstakur saksóknari gaf í gær út ákæru á hendur fjórum mönnum vegna svokallaðs Aurum Holdings-máls. Á meðal ákærðra eru athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 13. desember 2012 06:00 Jón Ásgeir um Aurum málið: Nýbúið að selja félagið á 36 milljarða Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekki svararð ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Fréttablaðið fullyrðir í dag að hann og Lárus Welding hafi verið ákærðir í svokölluðu Aurum máli, en eftir því sem Vísir kemst sem ákærður hefur verið í svokölluðu Aurum máli, hefur ekki svarað ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Vísir hefur aftur á móti undir höndum bréf sem hann sendi sérstökum saksóknara vegna rannsóknar málsins þann 10. desember 13. desember 2012 11:26 Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira
Lárus og Magnús Arnar ákærðir sem aðalmenn Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fjórum mönnum í Aurum-málinu svokallaða, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Magnúsi Arnari Arngrímssyni og Bjarna Jóhannessyni. Þeir eru ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við sex milljarða lánveitingu Glitnis í maí 2008. 13. desember 2012 17:26
Fjórir ákærðir fyrir umboðssvik Þrír fyrrum stjórnendur Glitnis og fyrrum stjórnarformaður aðaleiganda bankans hafa verið kærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim. Málið snýst um sex milljarða króna lánveitingu til kaupa á Aurum Holding. 14. desember 2012 00:01
Jón Ásgeir segir sakamálið skáldað Jón Ásgeir Jóhannesson segir í yfirlýsingu sem hann sendi til Fréttablaðsins að Aurum málið sé skáldað sakamál. Hann segir að sakarefni sem á sig eru borin standist ekki skoðun. 14. desember 2012 14:30
Sérstakur saksóknari tjáir sig ekki um rannsóknina á Aurum Fram hefur komið í fréttum að grunur leikur á að Glitnir hafi veitt félaginu FS38 sex milljarða lán árið 2008 til kaupa á eignarhlut Fons í breska félaginu Aurum Holdings, sem er umsvifamikið fyrirtæki í rekstri skartgripaverslana. Bæði Fons og FS38 voru í eigu Pálma Haraldssonar. Grunsemdir eru um að kaupverðið hafi verið margfalt hærra en raunvirði hlutarins og að lánveitingin hafi meðal annars verið framkvæmd til að losa um tvo milljarða króna í reiðufé, annan fyrir Pálma og hinn fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson.Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, vill ekkert tjá sig um stöðu Aurum málsins. Fréttavefur DV fullyrti í kvöld að búið væri að gefa út ákæru í málinu. Ekki væri vitað hverjir eru ákærðir. 12. desember 2012 22:31
Jón Ásgeir og Lárus ákærðir vegna Aurum Sérstakur saksóknari gaf í gær út ákæru á hendur fjórum mönnum vegna svokallaðs Aurum Holdings-máls. Á meðal ákærðra eru athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 13. desember 2012 06:00
Jón Ásgeir um Aurum málið: Nýbúið að selja félagið á 36 milljarða Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekki svararð ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Fréttablaðið fullyrðir í dag að hann og Lárus Welding hafi verið ákærðir í svokölluðu Aurum máli, en eftir því sem Vísir kemst sem ákærður hefur verið í svokölluðu Aurum máli, hefur ekki svarað ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Vísir hefur aftur á móti undir höndum bréf sem hann sendi sérstökum saksóknara vegna rannsóknar málsins þann 10. desember 13. desember 2012 11:26