Keflvíkingar eru mun ofar í töflunni og sigurstranglegri í karlaleiknum í dag. Stólarnir geta horft til Stjörnumanna sem fóru í Höllina í fyrsta sinn fyrir þremur árum og urðu þá bikarmeistarar eftir mjög óvæntan sigur á afar vel mönnuðu KR-liði.
Sigurganga SigurðarSigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, á nú frábæran möguleika á því að bæta enn einum titlinum í verðlaunasafnið hjá sér en Keflavík varð bikarmeistari undir hans stjórn 1997 og 2003.
Bárður Eyþórsson, þjálfari Tindastóls, er mættur með þriðja félagið í Höllina en þangað fóru einnig á sínum tíma Snæfellingar (2003) og Fjölnismenn (2008) undir hans stjórn. Bárður á enn eftir að vinna stóran titil (Íslands- eða bikarmeistaratitil) sem þjálfari en tvö af fjórum silfrum hans hafa komið eftir töp á móti liðum undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar.
Endurtekning frá 1999?

Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkur, er reynslumesti leikmaðurinn í dag en hann er að fara spila sinn fjórða bikarúrslitaleik. Halldór Örn Halldórsson og Gunnar H. Stefánsson voru einnig með þegar Keflavík vann bikarinn síðast fyrir átta árum.
Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Tindastóls, var með Keflavík í síðasta bikarúrslitaleik félagsins sem tapaðist árið 2006. Enginn Tindastólsmaður hefur unnið bikarinn en Friðrik Hreinsson tapaði bikarúrslitaleiknum með Hamar/Selfoss árið 2007.
Nýtt nafn á bikarinnNjarðvík og Snæfell keppa um það í dag að verða áttunda félagið sem vinnur bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki en Njarðvík er sigurstranglegra enda mun ofar í töflunni og þegar búið að slá út bæði Keflavík og Hauka. Njarðvík hefur tapað fyrstu þremur bikarúrslitaleikjum sínum en Snæfell er komið í Höllina í fyrsta sinn. Aðeins 3 af 8 liðum hafa unnið bikarinn í fyrstu tilraun en það gerðist síðast þegar Haukar unnu í bikarúrslitaleiknum 1984. Hinir gullnu nýliðarnir eru ÍS (1978) og Þór (fyrsti leikurinn 1975).
Njarðvík lék síðast til úrslita fyrir tíu árum en tapaði þá fyrir KR í framlengdum leik. Hildur Sigurðardóttir, núverandi leikmaður Snæfells, varð þá bikarmeistari í fyrsta sinn á ferlinum en hún lyfti einnig bikarnum sem fyrirliði KR fyrir þremur árum.
Njarðvíkingarnir Ólöf Helga Pálsdóttir og Petrúnella Skúladóttir urðu bikarmeistarar saman með Grindavík fyrir fjórum árum og eru einu leikmenn Njarðvíkurliðsins sem þekkja það að fara í Höllina. Hildur og Alda Leif Jónsdóttir hafa eina reynslu af bikarúrslitaleikjum í Snæfellsliðinu en Alda Leif á möguleika að verða bikarmeistari með þriðja félaginu.
Ef litið er á innbyrðisleiki vetrarins er ekki hægt að sjá fyrir annað en að karlalið Keflavíkur og kvennalið Njarðvíkur tryggi sér bikarmeistaratitilinn í dag. Keflavík hefur unnið báða leikina við Tindastól (með 9 og 19 stigum) og Njarðvíkurkonur hafa unnið alla þrjá leiki sína við Snæfell þar af þann síðasta með 24 stigum.
Tindastóll og NjarðvíkFréttablaðið fékk fimm leikmenn úr deildunum til að spá fyrir um úrslit leikjanna í dag. Atkvæðin skiptust meira í karlaleiknum því aðeins einn af fimm spámönnum kvennamegin er á því að Snæfellskonur vinni í fyrstu tilraun. Tindastóll fékk þrjú atkvæði gegn tveimur karlamegin. Það er hægt að sjá spárnar hér til hliðar. ooj@frettabladid.is