Að slá í gegn með nýju nafni Kjartan Guðmundsson skrifar 24. mars 2012 14:30 Damon Younger sem Brúnó
Lengi hefur tíðkast að Íslendingar, sem vilja slá í gegn, taki upp svokölluð meik-nöfn sem henta betur alþjóðasamfélaginu en hin ástkæru, ylhýru. Kjartan Guðmundsson rifjaði upp nokkur dæmi um slíkt í gegnum tíðina. Þegar spurðist út um afrek leikarans Damons Younger, sem slegið hefur í gegn í hlutverki sínu sem illmennið Brúnó í kvikmyndinni Svartur á leik sem trekkir íslenska áhorfendur að bíóhúsum um þessar mundir, héldu margir að um væri að ræða erlendan mann. Raunin er þó sú að Damon Younger er eins rammíslenskur og skyr og var skírður Ásgeir Þórðarson. Í kjölfar vinsælda Svarts á leik hefur Ásgeir sá verið þráspurður um ástæðu nafnabreytingarinnar og raunin mun vera sú að þegar kom að útskrift úr leiklistarskóla í Bretlandi hafi skólameistarinn hreinlega krafist þess að Ásgeir veldi sér leikaranafn, því hann fengi aldrei vinnu úti í hinum stóra heimi sem Ásgeir Þórðarson. Þetta er fráleitt einsdæmi meðal Íslendinga sem dreymir um að slá í gegn í útlöndum. Söngvarinn Stefán Guðmundsson tók upp nafnið Stefano Islandi, eða Stefán Íslandi, þegar hann söng á Ítalíu um tíma og sjálft Nóbelskáldið Halldór Laxness, sem fæddist Halldór Guðjónsson, kallaði sig Hall d'Or þegar hann freistaði þess að leggja kvikmyndaheiminn í Hollywood að fótum sér seint á þriðja áratug síðustu aldar. Þótt oft sé einbeittur meik-vilji að baki slíkum meik-nöfnum virðist sem þau séu á stundum fyrst og fremst fundin upp í hálfgerðu gríni. Til að mynda sneri tónlistamaðurinn Helgi Björnsson skemmtilega út úr nafni sínu og stofnaði fyrirtækið Holy B í kringum sjálfan sig. Á textablaði safnplötunnar Northern Light Playhouse, sem Fálkinn gaf út árið 1982 í þeim tilgangi að kynna íslenska tónlist fyrir umheiminum, er að finna upplýsingar á ensku um Utangarðsmenn, eina þeirra sveita sem eiga lög á plötunni. Þar hafa meðlimir sveitarinnar allir fengið ný nöfn: Bubbi Morthens kallast einfaldlega Mr. Morthens, trommarinn Magnús Stefánsson er Mad Dog Magoo, bassaleikarinn Rúnar Erlingsson er Rooney the Ripper og gítarbræðurnir Mike og Danny Pollock kallast þar Mickey Dean og Dirty Dan. Fyrirsæturnar Berglind Ólafsdóttir og Ásdís Rán eiga það sameiginlegt að hafa leitað í íslenskar táknmyndir í sínum meik-nöfnum, Berglind Icey og IceQueen. Þá kynnti Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sig sem U.B. þegar hún sigraði keppnina um fegurstu konu heims árið 2005.
Lífið Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira