Sungið á bak við lás og slá 25. ágúst 2012 16:00 nordicphotos/Getty
Tveggja ára fangelsisdómur yfir rússnesku pönksveitinni Pussy Riot fyrir óeirðir í kapellu í Moskvu hefur vakið gríðarlega athygli. Ekki er algengt að heilu hljómsveitirnar séu dæmdar í fangelsi en fjölmargir frægir tónlistarmenn hafa í gegnum tíðina þurft að sitja á bak við lás og slá fyrir hin ýmsu afbrot. Ók inn í ljósmyndavöruverslun George Michael hefur ítrekað komið sér í vandræði, oftast fyrir eiturlyfjanotkun sína. Fyrir tveimur árum var hann dæmdur í átta vikna fangelsi og missti ökuleyfið í fimm ár eftir að hafa ekið enn og aftur undir áhrifum eiturlyfja. Hann náðist eftir að hafa ekið Range Rover-bíl sínum inn í ljósmyndavöruverslun. Hann sat inni í fjórar vikur í Highpoint-fangelsinu í Suffolk á Englandi. Á toppnum í fangelsinu Rapparinn Lil Wayne var dæmdur í eins árs fangelsi á Rikers Island í New York fyrir að hafa byssu í fórum sínum. Á þeim tíma tókst honum að stofna bloggsíðu, hefja sölu á stuttermabolum í gegnum síðuna og vinna að plötu með kollega sínum Drake. Annar rappari, hinn sálugi Tupac Shakur, varð fyrsti tónlistarmaðurinn til að ná plötu á topp bandaríska listans sitjandi í fangelsi. Hún nefnist Me Against The World. Hann nýtti einnig tímann til að kvænast og semja handrit að kvikmyndinni Live 2 Tell. Braust inn til vinar síns Pete Doherty er vandræðagemlingur sem hefur margoft komist í kast við lögin. Árið 2003 var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa brotist inn í íbúð Carls Barât sem var með honum í hljómsveitinni The Libertines og stolið ýmsum verðmætum. Doherty sat inni í einn mánuð í fangelsinu Pentonville á Englandi. Þar samdi hann lagið Pentonville þar sem hann kvartaði yfir því að hafa þurft að sofa á óþægilegri dýnu. Þrjú ár í Víetnam Gamla glyshetjan Gary Glitter kom sér í vandræði þegar barnaklám fannst í tölvu hans þegar hann fór með hana í viðgerð árið 1997. Glitter flúði heimaland sitt England til Spánar og síðar Víetnams, þar sem hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum undir lögaldri. Eftir þriggja ára fangelsisvist í Binh Thuan í Víetnam var hann framseldur til Bretlands þar sem hann fer nú huldu höfði. Hundeltur af lögreglunni Sálargoðsögnin James Brown var átta sinnum handtekinn fyrir hin ýmsu brot. Það alvarlegasta átti sér stað 1988. Þá veifaði hann hlaðinni byssu í skrifstofuhúsnæði sínu og krafðist þess að fólkið þar hætti að nota salernin hans. Eftir að hafa verið eltur í bíl af lögreglunni í gegnum tvö ríki Bandaríkjanna var hann loksins handsamaður. Síðar kom í ljós að hann hafði notað eiturlyfið PCP sem veldur ofskynjunum. Tíu dagar í Tókýó Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney þurfti að dúsa í tíu daga í fangelsi í Tókýó í Japan 1980 eftir að hafa verið handtekinn á flugvellinum í Tókýó með marijúana í farangri sínum. Hann átti yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsi en slapp vel. Honum var vísað úr landi og var bannað að snúa aftur til Japans. Hann sneri samt aftur til eyjarinnar og hélt þar tónleika en ekki fyrr en tíu árum síðar. Ein nótt í fangelsi Rollingarnir Mick Jagger og Keith Richards þurftu að dúsa í eina nótt í Brixton-fangelsinu á Englandi árið 1967 vegna eiturlyfjamisferlis. Daginn eftir var þeim sleppt lausum gegn tryggingu. Jagger var síðar dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa dóp í fórum sínum og Richards var dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að leyfa kannabisreykingar á heimili sínu. Dómarnir þóttu alltof strangir og voru þeir felldir niður eftir að málinu var áfrýjað.
Andóf Pussy Riot Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira