Á fimmta þúsund sjá Baggalút 26. september 2012 13:00 vinsælir Grallararnir í Baggalúti sjá um að koma á fimmta þúsund Íslendinga í jólaskap. „
Þetta gerist miklu hraðar núna," segir Guðmundur Pálsson þegar borin er saman miðasalan á jólatónleika Baggalúts í fyrra og í ár. Uppselt er á þrenna tónleika grallaranna í Háskólabíói fyrir jólin, auk þess sem miðasala gengur mjög vel á tónleika númer fjögur og á tónleika í Hofi á Akureyri. „Þetta er mjög skemmtilegt. Það kemur alltaf á óvart þegar einhver nennir að hlusta á mann." Tónleikar Baggalúts hafa fest sig í sessi í jólatónleikaflórunni undanfarin ár. Síðasta ár spilaði hljómsveitin einnig á fernum tónleikum í Háskólabíói en svo virðist sem fólk sé æstara í að tryggja sér miða fyrir þessi jól. Um 3.600 manns verða því gestir á tónleikum Baggalúts í Háskólabíói. Með tónleikunum á Hofi verða áhorfendurnir á fimmta þúsund. Spurður hvort þeir félagar græði ekki vel á herlegheitunum segir Guðmundur: „Við erum með stóra hljómsveit og þetta er stórt hús. Þarna eru stór hljóðkerfi og það eru margir sem koma að þessu sem fá borgað. En auðvitað fáum við sjálfir sæmilega borgað fyrir þetta." Jólatónleikar Björgvins Halldórssonar og Frostrósa hafa hingað til borið af í vinsældum fyrir jólin. Spurður hvort Baggalútur sé að taka fram úr þeim hlær Guðmundur: „Nei, ég er ekki viss um að þetta sé sami hópurinn. Mér skilst að það séu frábærir tónleikar hjá þeim og mikil stemning. Það eru margir sem komast í jólafíling þar en líka margir sem komast í jólafíling hjá okkur. Við komumst að minnsta kosti í jólafíling." - fb
Lífið Mest lesið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Tónlist Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Lífið Fleiri fréttir Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Sjá meira