Íslenski boltinn

Framtíð landsliðsins björt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari og Heimir Hallgrímsson, aðstoðarmaður hans, á blaðamannafundinum í gær.
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari og Heimir Hallgrímsson, aðstoðarmaður hans, á blaðamannafundinum í gær. Mynd/Vilhelm
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær vegna næstu leikja Íslands í undankeppni HM 2014. Ísland mætir Albönum ytra á föstudaginn næstkomandi og tekur svo á móti Sviss þriðjudaginn 16. október.

Ísland byrjaði undankeppnina með því að vinna Noreg 2-0 en tapa svo 1-0 fyrir Kýpverjum ytra. Lagerbäck lofaði frammistöðu Íslands í fyrri leiknum en sagði að úrslitin gegn Kýpur hefðu valdið sér vonbrigðum. „Líklega vorum við of metnaðarfullir í varnarleik okkar," sagði hann. „Það er eitthvað sem skrifast á mína ábyrgð og er það undir mér komið að laga það fyrir næsta leik, en ég veit af reynslu minni með sænska landsliðinu hversu erfitt það er að fara til Albaníu og spila þar."

Lagerbäck tilkynnti landsliðshópinn sinn fyrr í vikunni. Aron Jóhannsson, AGF, var eini nýliðinn en Björn Bergmann Sigurðarson, Wolves, var ekki í hópnum.

„Í stuttu máli vill Björn einbeita sér að Wolves. Hann vill frekar æfa þar og vera 100 prósent einbeittur að sínu félagsliði. Ef menn vilja ekki koma í landsliðið þá vil ég ekki sannfæra þá um það. Við munum sjá til um framhaldið en það er ljóst að við verðum áfram í sambandi við hann og athugum síðar hvort hann vilji koma aftur í landsliðið," sagði Lagerbäck sem sagðist einnig sakna hins meidda Kolbeins Sigþórssonar mikið.

„Hann hefur nú verið hjá mér í þremur leikjum og miðað við það sem ég hef séð tel ég að hann hafi fulla burði til að verða einn allra besti sóknarmaður Evrópu. Árangur hans með landsliðinu, átta mörk í ellefu leikjum, er ótrúlegur."

Hann nýtti einnig tækifærið til að benda á nokkrar staðreyndir um hversu ungt og efnilegt landslið Íslendingar eiga. „Meðalaldur er í kringum 26 ár sem er nokkuð ungt í landsliðum. Þá hafa leikmenn spilað að meðaltali aðeins 17,8 landsleiki sem er verulega lítið," segir hann.

„Ég vona að ég lifi í nokkur ár í viðbót til að geta fylgst með íslenska landsliðinu. Framtíðin er mjög björt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×