Ísland í tísku á Travel Channel 22. nóvember 2012 11:00 Bjarni Haukur Þórsson „
Það var tökulið hérna í þrjár vikur í sumar. Ég eyddi með þeim hálfum degi þar sem við spjölluðu um alls konar hluti tengda Íslandi. Þar að auki mættu þeir á leiksýninguna mína How to Become Icelandic in 60 Minutes og tóku hana alla upp. Hvort þeir noti svo eitthvað af því efni veit ég ekkert um," segir leikarinn Bjarni Haukur Þórsson um heimsókn Travel Channel hingað til lands í sumar. Tilefni heimsóknarinnar var upptaka á Íslandsþætti Bobs Kelly í þáttaröðinni The Ethical Hedonist. Um er að ræða klukkutíma langan þátt sem er alfarið tileinkaður Íslandi og verður sýndur á Travel Channel þann 1. desember næstkomandi klukkan 18.00. Alls samanstendur þáttaröðin af fjórum þáttum, en í hinum þremur heimsækir Bob Srí Lanka, Malaví og Portúgal. Íslendingar ættu margir hverjir að geta horft á þáttinn því Travel Channel er að finna bæði í fjölvarpspakka Stöðvar 2 og Skjáheims. Svo virðist sem Travel Channel sé með hálfgert Íslandsþema í gangi um þessar mundir og til að mynda eru þættirnir Cruising The Icelandic Fjords og Around Iceland On Inspiration báðir sýndir sama dag og Íslandsþáttur Bobs Kelly. Í þeim fyrrnefnda heimsækir Saga Sapphire landið og kíkir á næturlífið í Reykjavík eitt laugardagskvöld, en hinn er hluti af þrettán þátta röð þar sem Riaan Manser og Dan Skinstad ferðast um landið. - trs
Lífið Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira