Spilavítinu Melaskóla lokað Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 30. nóvember 2012 08:00 Um miðjan tíunda áratuginn var enginn maður með mönnum á skólalóðinni án þess að eiga safn af Pox-spjöldum. Þessi litríku, kringlóttu spjöld lagði maður undir í keppni við aðra sem snerist um að kasta svokölluðum sleggjum á spjöldin með það fyrir augum að snúa þeim við, en þar með eignaðist maður þau. Vildi maður tefla virkilega djarft lagði maður sleggjurnar undir. Minnist ég þess að hafa eitt skiptið hlaupið grátandi heim eftir að hafa tapað flottustu sleggjunni minni. Hún var úr stáli, sjáið þið til. Poxið var reyndar ekki lengi að detta úr tísku en við dóum ekki ráðalausir. Við snerum okkur einfaldlega að harki með tíköllum eða þá Drakkó-köllum, svo önnur tískubóla æskuáranna sé nefnd. Skólalóð Melaskóla var nefnilega ekkert annað en spilavíti. Nú á loks að binda enda á þennan ósóma. Innanríkisráðherra vill setja á fót nýja ríkisstofnun sem sinna á eftirliti með veðmálastarfsemi innanlands. Þá á að banna Íslendingum að notfæra sér erlendar veðmálavefsíður. Af hverju? Það er reyndar vandséð þar sem ekki er gert ráð fyrir að spilakassar, bingóið í Vinabæ, happdrætti eða tippið verði bönnuð. Það virðist nefnilega heldur vera á forsendum efnahagslegrar verndarstefnu sem ráðherra vill setja slíkt bann. Þannig hefur hann lagt áherslu á að veðmálafé fari úr landi og jafnframt sagst opinn fyrir því að innlendum fyrirtækjum verði gert kleift að bjóða upp á netspil. Þá vaknar spurningin af hverju að láta staðar numið þarna, af hverju bönnum við ekki bara líka til dæmis innflutning erlendra kvikmynda eða jafnvel húsgagna? Þar koma væntanlega til hin rök ráðherra fyrir ráðgerðum lagabreytingum, sem snúa að því að veðmálafíkn sé vaxandi vandamál á Íslandi. Hér verður ekki gert lítið úr þeim vanda sem veðmálafíkn getur valdið einstaklingum og fjölskyldum þótt slík fíkn sé reyndar mjög sjaldgæf (minna en 1% fólks á við slíka fíkn að stríða samkvæmt flestum rannsóknum). En það má heldur ekki gera lítið úr rétti fólks til að ráðstafa eigin eignum að vild. Takmarkanir á þeim rétti verða að vera studdar með sterkum rökum. Tilfinning ráðherra um umfang veðmálafíknar (í samtali við Morgunblaðið sagðist hann ekki hafa tölfræðilegar upplýsingar til að styðja fyrrnefnda fullyrðingu) uppfyllir ekki það skilyrði. Þá er raunar erfitt að sjá að vandi mjög fámenns hóps réttlæti yfirhöfuð takmarkanir á hegðun allra í tilviki sem þessu. Það er nefnilega ekki svo einfalt að gera skýran greinarmun á „hættulegri" fíkn og „eðlilegri" afþreyingu. Lítill hópur Íslendinga þjáist af netfíkn en það er varla nægjanleg ástæða til að banna netnotkun á Íslandi, eða hvað? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þorlákur Lúðvíksson Mest lesið 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty Skoðun
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun