Leit að veruleika Erla Hlynsdóttir skrifar 4. desember 2012 07:00 Ég er með smá verkefni handa þér. Ef þú ert ekki að lesa þennan pistil á netinu þá vil ég að þú setjist núna fyrir framan nettengda tölvu. Þú þarft að finna þér leitarvél, ég mæli með Google.is, og þar vil ég að þú leitir að nokkrum orðum. Í dag ætlum við að einbeita okkur að myndum því myndir segja jú meira en þúsund orð. Fyrst legg ég til að þú leitir að myndum af skólastrákum. Af því að tungumál netsins er enska þá þarft þú að skrifa „schoolboy". Nú færð þú upp fullt af myndum. Þetta eru myndir af litlum sætum strákum með skólatösku á bakinu. Þeir eru sumir með blýant í hönd og jafnvel virðulegir drengir með bindi. Næst þarft þú að gúggla skólastelpur, „schoolgirl". Nú færðu upp myndir af litlum sætum stelpum. Sumar þeirra eru reyndar ekki svo litlar en þær þykjast vera það. Þær eru í fráhnepptum skyrtum sem sýna brjóstaskoruna vel og þær eru í allt of stuttum pilsum sem ná ekki að hylja rassinn þegar þær halla sér munúðarfullar fram. Nýtt verkefni. Nú leitum við að myndum eftir heimsálfum. Fyrst leitar þú að öllu sem er evrópskt, „european". Þarna kemur Evrópusambandið sterkt inn, fánar nokkurra landa svo og kortamynd af Evrópu. Næst skulum við gúggla „american". Þá sjáum við bandaríska fánann, bandaríska fánann og bandaríska fánann. Ein heimsálfa í viðbót: Asía. Nú skrifum við „asian" inn í leitarvélina. Nú tökum við upp skrifblokkina og punktum hjá okkur hversu margar myndirnar eru af konum sem eru ekki í neinu að ofan nema brjóstahaldara. Þessu allsendis ótengt þá heyrði ég brandara um daginn. Hann var um Google. Brandarinn var: Hvort er Google stelpa eða strákur? Svar: Stelpa, því hún leyfir þér aldrei að klára sjálfur setningar og leggur þér sífellt orð í munn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erla Hlynsdóttir Mest lesið Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Herferð Heimildarinnar gegn Miðflokknum Breki Atlason Skoðun Klöppuðu fyrir evrópska heimsveldinu Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Sá er vinur sem í raun reynist Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Hverjum á ég að trúa um ESB? Ólafur Hauksson Skoðun Danir kjósa um hag barna. Ættum við ekki að gera það líka? Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Má bjóða þér að fara eftir lögum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Skiptir máli hvort Jens Garðar sé á þingi? Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Af hverju sjáum við oft ekki það sem er beint fyrir framan okkur? Inga María Ólafsdóttir Skoðun Ofbeldi innan eða í skjóli stofnana – ákall um viðbrögð Drífa Snædal Skoðun