Viðskipti erlent

Hlutabréf í bönkum hækka um allan heim

Magnús Halldórsson skrifar
Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Hlutabréf í bönkum og fjármálafyrirtækjum hafa hækkað mikið á mörkuðum í morgun, eftir að ákveðið var að gefa alþjóðlegum bönkum lengri tíma til þess að styrkja efnahag sinn, en tilkynning þess efnis var birt í gær. Samkvæmt fyrstu drögum nefndar á vegum Alþjóðagreiðslubankans í Basel, sem Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, seðlabanka Bretlands, fer fyrir, var áætlað að nýjar reglur tækju gildi 2015.

Nýtt regluverk fyrir alþjóðafjármálamarkaði, sem gjarnan er kennt við Basel, hefur verið í bígerð undanfarin ár, og er þar einkum horft til þess að gera banka traustari og ábyrgari. Helsta breytingin sem rætt hefur verið um, er að hækka lögbundið eiginfjárlágmark úr 8 prósentum í 12 til 16 prósent, en endanleg ákvörðun um þetta liggur ekki fyrir.

Þá hefur einnig verið horft til þess að gera reglur um lausafjárstöðu banka strangari, með það fyrir augum að gera bankastarfsemi öruggari.

Í fyrstu var bönkum veittur frestur til ársins 2015, til þess að styrkja lausafjárstöðu sína, en samkvæmt tilkynningunni sem gerð var opinber í gær, munu bankar fá tíma til ársins 2019 til þess að styrkja efnahag sinn, þar helst lausafjárstöðu. Fjárfestar hafa tekið þessum tíðindum vel, og hefur gengi bréa banka hækkað á nær öllum mörkuðum í morgun.

Gengi hlutabréfa í breska bankanum Barclays hefur hækkað um 3,4 prósent í dag, gengi bréfa Deutsche Bank um 3,2 prósent og gengi bréfa Commerzbank um 2,2 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×