Körfubolti

NBA í nótt: Breyttur Kobe og Lakers vann þriðja leikinn í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kobe Bryant í leiknum í nótt.
Kobe Bryant í leiknum í nótt. Mynd/AP
Kobe Bryant hélt áfram að spila fyrir liðsfélaga sína í LA Lakers og liðið vann góðan sigur á New Orleans á heimavelli, 111-106.

Þetta var þriðji sigur Lakers í röð á tímabilinu en það er í fyrsta sinn í fimm vikur sem liðið vinnur svo marga leiki í röð.

Lakers er þó enn í tíunda sæti Vesturdeildarinnar en mjakast með þessu áframhaldi nær sæti í úrslitakeppninni.

Kobe Bryant skoraði fjórtán stig og var með ellefu stoðsendingar. Hann átti reyndar fleiri skottilraunir utan af velli en stoðsendingar en með þessu áframhaldi er alveg eins líklegt að hitt verði ofan á í næstu leikjum.

Bryant var með fjórtán stoðsendingar í báðum hinum sigurleikjunum en þessi breytti líkstíll hefur haft mikil og góð áhrif á Lakers, sem átti skelfilegu gengi að fagna framan af móti.

Bryant hefur því alls átt 39 stoðsendingar í síðustu þremur leikjum. Hann hefur aldrei áður náð slíkum fjölda innan þriggja leikja á sínum sautján ára ferli í NBA-deildinni.

„Þetta gengur nokkuð vel," sagði hann. „Það er mjög auðvelt fyrir mig að líta yfir vörn andstæðingsins og vita hvaðan þeir eru að koma. Svo bara stilli ég mínum mönnum upp á réttan hátt og við göngum frá þessu."

Lakers var með forystu lengst af í leiknum en New Orleans kom til baka undir lokin með frábærum 24-1 spretti. Minnstur varð munurinn í stöðunni 102-101 en þá setti Steve Nash niður mikilvægan þrist og Lakers kláraði leikinn.

Earl Clark var með 20 stig og tólf fráköst fyrir Lakers en stigahæstur hjá New Orleans var Eric Gordon með 25 stig.

Portland vann Dallas, 106-104, þar sem LaMarcus Aldridge tryggði sínum mönnum sigursins með flautukörfu í lok leiksins. Portland lenti mest 21 stigi undir í leiknum en það var í þriðja leikhluta. Aldridge var alls með 29 stig og þrettán fráköst. Dirk Nowitzky var með 26 stig fyrir Dallas.

Úrslit næturinnar:

Cleveland - Golden State

Detroit - Milwaukee 90-117

Portland - Dallas 106-104

LA Lakers - New Orleans 111-106

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×