Körfubolti

Boston fór illa með Lakers

Pierce fagnar í nótt.
Pierce fagnar í nótt.
Boston Celtics er að pluma sig vel án Rajon Rondo og liðið vann í nótt sinn sjötta leik í röð er meiðslum hrjáð lið LA Lakers kom í heimsókn í Garðinn.

Paul Pierce skoraði 12 af 24 stigum sínum í þriðja leikhluta. Jeff Green skoraði 19 stig og Jason Terry 15.

Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 27 stig en Lakers var búið að vinna þrjá leiki í röð fyrir gærkvöldið. Heimsfriður var hörmulegur í liði Lakers en hann nýtt aðeins tvö af þrettán skotum sínum í leiknum.

Denver vann einnig auðveldan sigur á Chicago. Kenneth Faried fór mikinn í liði Denver með 21 stig og 12 fráköst og Wilson Chandler skoraði 24 stig.

Daequan Cook var stigahæstur hjá Chicago með 19 stig og Carlos Boozer skoraði 18.

Úrslit:

Boston-LA Lakers 116-95

Denver-Chicago 128-96



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×