Formúla 1

Massa á Ferrari langfljótastur í Jerez

Birgir Þór Harðarson skrifar
Massa ók hraðast á æfingunum í dag.
Massa ók hraðast á æfingunum í dag. nordicphotos/afp
Felipe Massa setti besti tíma ársins á Jerez-brautinni í dag þegar hann ók hringinn 0,4 sekúndum hraðar en Romain Grosjean gerði í gær og heilli sekúndu hraðar en Jenson Button gerði fyrir tveimur dögum. Mun fleiri hringir voru eknir í dag en í gær.

Það var helst að frétta af æfingunum í dag að Nico Rosberg gat ekið Mercedes-bílnum án vandræða í allan dag. Hann bætti um betur og ók heila 148 hringi, mun fleiri en nokkur hefur gert í ár. Michael Schumacher ók mest 139 hringi á einum degi í fyrra fyrir Mercedes.

Hringjafjöldinn var mikilvægur til að bæta upp fyrir takmarkaðar prófanir á þriðjudag og miðvikudag en bilanir gerðu það að verkum að þeir Lewis Hamilton og Rosberg hafa þurft að sitja hjá mest allt æfingatímabilið.

Rosberg átti hins vegar næst besta tíma á eftir Massa. Sebastian Vettel átti þriðja besta tíma í Red Bull-bílnum nýja sem hann segir klárlega vera skref í rétta átt síðan í fyrra. „Ég held að bíllinn virki mjög vel. Auðvitað er erfitt að dæma hraðann en hvað áreiðanleika varðar er hann góður," sagði Vettel.

Nokkur gagnrýnir hefur verið á æfingastaðinn í Jerez á Spáni. Pirelli-dekkjaframleiðandinn segir brautina ekki gefa nógu góða mynd af því hvernig nýju dekkin virka og vilja að brautin verði ekki notuð á næsta ári nema nýtt slitlag verði lagt í tæka tíð.

„Það er eriftt að meta hversu vel við stöndum því allir voru að leika sér með mismunandi eldsneytismagn," sagði Vettel enn fremur. „Þetta eru jafnframt fyrstu æfingarnar og við erum í Jerez þar sem dekkjaslitið er mjög mikið og dekkin spila stærra hlutverk en undir venjulegum kringumstæðum. Það eru of margar breytur sem hafa áhrif."

Yfirmaður Vettels hjá Red Bull, Christian Horner liðstjóri, er hins vegar viss um að ekkert lið muni hafa yfirburði á komandi keppnisvertíð. „Ég held að þetta verði þannig að mismunandi brautir henti mismunandi bílum," sagði hann í morgun. „Ég held að þetta verði eins og í fyrra. Fjögur eða fimm lið munu hafa burði til að vinna mót og það verður í höndum liðanna og ökumannanna að ná sem jöfnustum og bestum árangri í öllum mótunum 19."



Jerez7. febrúar 2013Æfing 3   
PÖkuþórLiðTímiBilHringir
1MassaFerrari1:17,879 85
2RosbergMercedes1:18,7660,548148
3VettelRed Bull1:19,0520,834102
4RaikkonenLotus1:19,2000,98240
5VergneToro Rosso1:19,2471,02985
6RossiterForce India1:19,3031,08542
7ButtonMcLaren1:19,6031,38583
8GutierrezSauber1:19,9341,716110
9ChiltonMarussia1:21,2693,05178
10BottasWilliams1:21,5753,35786
11PicCaterham1:22,3524,13457
12di RestaForce India1:23,7295,5117
  Samtals  923



Fleiri fréttir

Sjá meira


×