Formúla 1

Newey segir frumsýningar gamaldags

Birgir Þór Harðarson skrifar
Red Bull-liðið kynnti nýja keppnisbílinn sinn í Milton Keynes á sunnudag. Simon Sproule, fulltrúi aðalstyrktaraðila liðsins, Adrian Newey, Christian Horner, liðstjóri, Vettel og Webber, ökumenn, svöruðu spurningum blaðamanna.
Red Bull-liðið kynnti nýja keppnisbílinn sinn í Milton Keynes á sunnudag. Simon Sproule, fulltrúi aðalstyrktaraðila liðsins, Adrian Newey, Christian Horner, liðstjóri, Vettel og Webber, ökumenn, svöruðu spurningum blaðamanna. nordicphotos/afp
Adrian Newey, yfirhönnuður Red Bull-liðsins í Formúlu 1 og einhver sigursælasti hönnuður í mótorsporti allra tíma, segir frumsýningar á nútíma Formúlu 1-bílum vera úrelltar.

Þetta sagði hann við fjölmiðla eftir að hulunni hafði verið svipt af nýjasta hugarfóstri sínu RB9-bíl Red Bull-liðsins fyrir árið 2013. Ástæðuna fyrir þessari skoðunn sinni segir hann vera þær breytingar sem Formúlu 1-leikurinn hefur gengið í gegnum síðasta áratuginn.

"Það sem hefur breyst hvað mest í Formúlu 1 á síðustu 10 árum er hversu títt keppnisbílarnir eru uppfærðir yfir árið," sagði Newey. "Það var sú tíð þegar maður kynnti yfirburðabíl í byrjun tímabilsins og svo lengi sem bíllinn reyndist áreiðanlegur mundi liðið vinna heimsmeistaratitilinn."

Newey hefur hannað marga slíka bíla á ferli sínum. Meðal þeirra má nefna Williams-bílana 1992 og 1993 og McLaren-bíl Mika Hakkinen árið 1998, svo bestu dæmin séu tekin.

"Svona er þetta ekki lengur því leikurinn snýst meira um stöðugar uppfærslur. Svo lengi sem reglurnar eru stöðugar mætti ímynda sér að fyrir hvern kappakstur komi nýr bíll. Það sem er breytt núna er að á milli síðustu keppni og fyrstu keppni ársins í ár liðu tveir mánuðir en ekki tvær vikur," sagði Newey.

Frumsýning Red Bull-liðsins um helgina endurspeglaði þetta viðhorf Newey á margan hátt enda var hún lágstemd. Blaðamenn hinna ýmsu miðla veltu því fyrir sér hvort Adrian Newey hefði skapað enn aðra draumavélina fyrir Sebastian Vettel.

Allar myndatökur voru bannaðar í salnum þar sem frumsýningin átti sér stað og blaðamenn fengu ekki aðgang að þráðlausu neti. Myndirnar sem Red Bull-liðið sendi frá sér sýna jafnframt ekki mikið af viðkvæmustu svæðum bílsins og virðast frekar vera til þess ætlaðar að hygla aðalstyrktaraðila liðsins, Infiniti.

Newey vill samt ekki meina að þeir séu í meiri feluleik en keppinautarnir og svaraði: "Hin liðin hafa aðeins veitt aðgang að myndum sem sýna takmarkað af bílunum eins og við."

Ferrari vél F138-bílsins sem kölluð er Ferrari Type 056nordicphotos/afp
Ferrari F138nordicphotos/afp
Lotus E21-bíllinnnordicphotos/afp
Lotus E21-bíllinnnordicphotos/afp
Lotus E21-bíllinnnordicphotos/afp
Sergio Perez og Jenson Button taka dúkinn af McLaren MP4-28-bílnum sem þeir munu aka í ár.nordicphotos/afp
Button og Perez stilltu sér upp fyrir myndatöku í höfuðstöðvum McLaren-liðsins í Woking rétt sunnan Lundúna.nordicphotos/afp
McLaren MP4-28nordicphotos/afp
Felipe Massa og Fernando Alonso munu aka F138-bílnum í ár.nordicphotos/afp
Paul di Resta er eini keppnisökuþór Force India-liðsins en enn hefur ekki verið ráðinn ökuþór til að aka hinum VJM06-bílnum.nordicphotos/afp
Di Resta og VJM06-bíllinnnordicphotos/afp
Di Resta ók nokkra hringi um Silverstone í bleytu.nordicphotos/afp
Red Bull RB9-bíllinn sem Adrian Newey hefur hannað fyrir árið 2013.nordicphotos/afp
Ferrari F138nordicphotos/afp
Ferrari baðaði F138-bílinn ljósum þar sem hann stóðu undir hulunni.nordicphotos/afp
Ökuþórar Ferrari-liðsins ásamt yfirmönnum sínum.nordicphotos/afp
Ferrari F138nordicphotos/afp
Vettel og Webber drógu dúkinn af RB9-bílnum.nordicphotos/afp
Yfirmenn Red Bull-liðsins og ökuþórar svöruðu spurningum blaðamanna eftir að hulunni hafði verið svipt af keppnisbílnum.nordicphotos/afp
Red Bull RB9-bíllinnnordicphotos/afp
Mark Webber og Sebastian Vettel við RB9-bílinnnordicphotos/afp
Lewis Hamilton mun aka fyrir Mercedes-liðið í ár en hann hefur ekið fyrir McLaren síðan hann fékk fyrst tækifæri í Formúlu 1 árið 2007.nordicphotos/afp
Alonso og Massa stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.nordicphotos/afp
Nico Rosberg mun áfram aka fyrir Mercedes.nordicphotos/afp
Sauber-liðið kynnti C32-bílinn í höfuðstöðvum liðsins í Hinwill í Sviss. Nico Hulkenberg og Esteban Gutierrez munu aka bílnum í sumar.nordicphotos/afp
Nico Hulkenberg hætti hjá Force India og fór yfir til höfuðkeppinautanna í Sauber fyrir árið 2013.nordicphotos/afp
Hið ítalska Toro Rosso, systurlið Red Bull-liðsins, frumsýndi STR8-bílinn sem þeir Jean-Eric Vergne og Daniel Ricciardo munu aka í ár.nordicphotos/afp
Ricciardo og Vergne stilltu sér upp með hjálmana sína undir arminum.nordicphotos/afp
Jean-Eric Vergne mun aka bíl númer 18 á keppnisvertíðinni sem senn fer í hönd.nordicphotos/afp
Nico Hulkenberg og Lewis Hamilton voru einbeittir þegar Mercedes kynnti W04-bílinn í Jerez á Spáni en þar hefjast fyrstu æfingar undirbúiningstímabilsins í dag.nordicphotos/afp
Hulkenberg og Gutierrez stilltu sér upp við C32-bílinn.nordicphotos/afp
Ökumenn Sauber-liðsins svöruðu spurningum blaðamanna ásamt liðstjóranum Monishu Kaltenborn og stofnanda liðsins Peter Sauber.nordicphotos/afp
Bíll Sauber-liðsinsnordicphotos/afp
Gutierrez kynnti sér stjórntæki keppnisbílsins en hann er einn af nýliðunum í Formúlu 1 í ár.nordicphotos/afp
Ökumenn Toro Rosso-liðsins og STR8-bíllinnnordicphotos/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×