Körfubolti

Sonur Nick Van Exel dæmdur í 60 ára fangelsi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Nickey Van Exel, 22 ára gamall sonur fyrrum NBA-leikmannsins Nick Van Exel, var dæmdur í 60 ára fangelsi fyrir morð á dögunum.

Van Exel yngri skaut Bradley Eyo, sem fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja hafa veirð hans besta vin, til bana árið 2010.

Faðir hans var viðstaddur réttarhöldin og grét eftir dómsuppkvaðninguna. Sonur hans fær mögulega reynslulausn eftir 30 ár.

Nick Van Exel lék í NBA-deildinni frá 1993 til 2006 með LA LAkers, Denver, Dallas, Golden State, Portland og San Antonio. Hann starfar í dag sem aðstoðarþjálfari hjá Atlanta.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×