Viðskipti erlent

Kínverjar fjárfesta í dönskum minkabúum í fyrsta sinn

Í fyrsta sinn í sögunni hafa Kínverjar fjárfest í minkabúum í Danmörku en þeir hafa á síðustu árum verið stærstu kaupendur danskra og íslenskra minkaskinna.

Kínverjar koma inn í dönsku loðdýraræktina af talsverðum krafti í byrjun því þeir hafa keypt fimm stór dönsk minkabú á síðustu mánuðum. Þetta kemur fram á vefsíðu börsen. Þar er rætt við Tage Pedersen forstjóra uppboðshússins Kopenhagen Fur sem segist vera stoltur yfir því að Kínverjar vilji fjárfesta í danskri minkarækt. Slíkt sé gríðarleg viðurkenning fyrir danska loðdýrabændur.

Kopenhagen Fur er stærsta uppboðshús Norðurlandanna þegar kemur að sölu á minkaskinnum og þar selja íslenskir loðdýrabændur öll sín minkaskinn. Á síðasta uppboðinu í þessum mánuði var sölumet slegið eins og kunnugt er af fréttum en þá voru 500 af 800 kaupendum frá Kína.

Palle Höj sem starfar sem ráðgjafi fyrir danska loðdýrabændur segir að viðlíka áhugi Kínverja á að fjárfesta í minkaræktinni hafi ekki sést áður. Palle reiknar með að Kínverjar hafi áhuga á að kaupa enn fleiri dönsk minkabú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×