Körfubolti

Curry skoraði 54 stig gegn Knicks

Curry var sjóðheitur í nótt.
Curry var sjóðheitur í nótt.
Stephen Curry, leikmaður Golden State Warriors, er sjóðheitur þessa dagana. Hann skoraði 38 stig gegn Indiana í fyrrinótt og bætti svo um betur í nótt er hann skoraði 54 stig gegn NY Knicks.

Stigin 54 dugðu þó ekki til sigurs en það þurfti mikið átak hjá Knicks til þess að klára leikinn og sjóðheitan Curry. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2009 að einhver skorar yfir 50 stig í Madison Square Garden en LeBron James gerði það síðast.

Carmelo Anthony mjög öflugur í liði Knicks með 35 stig og JR Smith skoraði 26.

Úrslit:

Orlando-Sacramento 101-125

Cleveland-Toronto 103-92

Washington-Detroit 95-96

NY Knicks-Golden State 109-105

Memphis-Dallas 90-84

Houston-Milwaukee 107-110

Oklahoma-New Orleans 119-74

San Antonio-Phoenix 101-105

Atlanta-Utah 102-91

Portland-Denver 109-111

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×