Körfubolti

James íhugar að hætta að troða | Myndband

Fólk í Bandaríkjunum nennir að kvarta yfir flestu sem tengist körfuboltastjörnunni LeBron James. Nýjasta vælið gæti orðið til þess að leikmaðurinn hætti að troða fyrir leiki.

James hefur aldrei viljað taka þátt í troðslukeppni Stjörnuleiksins þó svo hann sé betri en flestir í þeirri iðju. Pressa frá deildinni og aðdáendum hefur ekki dugað til þess að fá hann í keppnina.

Leikmaðurinn hefur vakið athygli upp á síðkastið fyrir frábærar troðslur í upphitunum fyrir leiki. Troðslur sem myndu sóma sér vel í troðslukeppninni og er nú kvartað yfir því af hverju hann geri þetta í upphitun en taki svo ekki þátt í troðslukeppninni.

"Kannski ætti ég að hætta þessu fyrst það verða svona margir reiðir yfir þessu hjá mér. Það er ótrúlegt að fólk sé að kvarta yfir þessu," sagði James pirraður.

Hér að neðan má sjá eina af þessum frábæru troðslum James í upphitun.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×