Barcelona á Agger-veiðum á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2013 13:15 Daniel Agger. Mynd/Nordic Photos/Getty
Umræðan um Daniel Agger og Barcelona er ekki dauð úr öllum æðum þrátt fyrir að danski miðvörðurinn hafi framlengt samning sinn við Liverpool. Agger var orðaður við spænska stórliðið í sumar og nú eru ensku slúðurblöðin The Sun og Daily Mirror farin að skrifa um málið á ný. Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er á lokasprettinum á sínum ferli og Javier Macherano hefur talað um það í fjölmiðlum að hann óski þess að hans gamli liðsfélagi í Liverpool komi til hans á Nou Camp. Thomas Vermaelen hjá Arsenal hefur einnig verið orðaður við Barcelona í ensku slúðurblöðunum í dag en það virðist vera nokkuð öruggt að Barca ætli að bæta við sig varnarmanni í sumar. Daniel Agger hefur verið hjá Liverpool síðan 2006 og nýi samningurinn hans rennur ekki út fyrr en sumarið 2016. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, mun gera allt til að halda sínum manni en sumarið hjá honum gæti hinsvegar farið í að leita sér að miðvörðum. Jamie Carragher leggur skóna á hilluna, Sebastian Coates er líklega á leiðinni aftur til Suður-Ameríku og þá er óvissa í kringum framtíð Martin Skrtel sem gæti farið aftur til Zenit Skt. Petersburg. Skrtel komst upp á kant við Brendan Rodgers á dögunum. Liverpool má því alls ekki við því að missa Agger.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Í beinni: Valur - Haukar | Toppslagur og Valsmenn eiga harma að hefna Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira