Körfubolti

Howard býður sig fram á ÓL árið 2016

Miðherja LA Lakers, Dwight Howard, fannst greinilega gaman á Ólympíuleikunum í Peking því hann er búinn að bjóða fram krafta sína fyrir leikana árið 2016.

Howard gat ekki tekið þátt á ÓL í London í fyrra vegna bakmeiðsla en hann ætlar ekki að missa af næstu veislu.

Howard verður þá orðinn þrítugur en það særði hann að missa af síðustu leikum.

"Ég var brjálaður. Ég var virkilega brjálaður yfir því að missa af leikunum. Ég missti líka af úrslitakeppninni og þetta var erfiður tími," sagði Howard.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×