Viðskipti erlent

Líkur á að Carlos Slim missi titilinn sem auðugasti maður heimsins

Líkur eru á að mexíkóski auðmaðurinn Carlos Slim muni missa titil sinn sem auðugasti maður heimsins.

Fjallað er um málið á vefsíðu börsen. Þar segir að verið sé að herða reglur um samkeppni á farsímamarkaðinum í löndum Suður Ameríku en þær reglur muni koma verulega við kaunin á Slim og draga úr því ægivaldi sem hann hefur haft á þeim markaði. Einnig hafa evrópskar fjárfestingar Slim ekki gengið sem skyldi að undanförnu.

Sem stendur munar 4,8 milljörðum dollara á eignum Slim og Bill Gates stofnanda Microsoft og er það minnsti munur á eignum þeirra undanfarið ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×