Körfubolti

Knicks valtaði yfir Utah án Carmelo og Stoudemire | Áttundi sigur Denver í röð

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jason Kidd sækir að Gordon Hayward í nótt.
Jason Kidd sækir að Gordon Hayward í nótt. Mynd/AP
New York Knicks fór létt með Utah Jazz í NBA körfuboltanum í nótt þrátt fyrir að stjörnurnar Carmelo Anthony og Amare Stoudemire séu meiddar og léku því ekki með liðinu en alls voru sjö leikir í NBA í nótt.

Lítið hefur gengið hjá Utah Jazz að undanförnu. Liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð og er nú með sama vinningshlutfall og Los Angeles Lakers en liðin eiga í harðir baráttu um 8. sæti Vesturdeildar.

Það voru varamenn New York Kincks sem fóru illa með Jazz í nótt. J.R. Smith skoraði 24 stig af bekknum og Steve Novak 20. Raymond Felton skoraði mest byrjunarliðsmanna liðsins, 15 stig. Alec Burks var stigahæstur hjá Jazz með 14 stig.

Denver Nugggets vann áttunda leik sinn í röð og 13. heimasigurinn í röð þegar liðið vann Minnesota Timberwolves örugglega 111-88 í Denver.

Ty Lawson fór á kostum hjá Denver og skoraði 32 stig. Corey Brewer skoraði 15 stig af bekknum. Mickael Gelabale skoraði 19 stig fyrir hið meiðsla hrjáða lið Minnesota.

James Harden skoraði 38 stig og gaf 8 stoðdendingar fyrir Houston Rockets en það dugði ekki til því Phoenix Suns sigraði leik liðanna 107-105 í nótt en Goran Dragic skoraði 13 af 18 stigum sínum í fjórða leikhluta.

Jared Dudley var stigahæstur hjá Suns með 22 stig. Omer Asik hirti 16 fráköst fyrir Rockets en fékk litla hjálp við þá iðju hjá samherjum sínum.

Úrslit næturinnar:

Utah Jazz - New York Knicks 84-113

Minnesota Timberwolves - Denver Nuggets 88-111

Houston Rockets - Phoenix Suns 105-107

Brooklyn Nets - Atlanta Hawks 93-80

Charlotte Bobcats - Washington Wizards 87-104

New Orleans Hornets - Memphis Grizzlies 85-96

Milwaukee Bucks - Golden State Warriors 103-93

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×